Oddny bloggar

30 október 2006

Helgin

Þuríður og Kristín María
Costra - Góða ferð
, Rokkarar!!!

Eimuvision var bara gaman eða allt þar til úrslitin voru kynnt...við sem sagt unnum ekkert...og vorum hundfúlar hreint út sagt, við létum Jenna dómara heyra það óspart en honum fannst við bara fyndnar og hló að okkur! En það var samt mikið fjör og gaman:) Bað svo Jónmund um að koma að sækja mig um 11 leytið en þá var ég alveg búin enda búin að vera að síðan um 4. Hann fékk alveg að heyra hvað ég var fúl og ég ætlaði ekki að geta sofnað því ég var svo tapsár en það gekk svo fyrir rest hahaha:)
Laugardagurinn var bara fínn hjá okkur, ég fór og tók viðtal við ömmu (íslenskuverkefni) og það var mjög fróðlegt get ég sagt ykkur og bara gaman:) Svo fórum við til Guðmundar og Önnu og pössuðum fyrir þau gríslingana svo þau gætu skroppið í bíó.
Við sváfum svo til kl 12:30 í gær sem vara agalega gott, fórum svo að þrífa, ég að læra og svo komu Binna og Axel í heimsókn með ormana sína. Höfðum það svo bara kósý í gærkvöldi, leigðum Da Vinci Code sem er geðveik! En mikið hrikalega var erfitt að vakna í morgun, hefði alveg getað sofið mikið lengur.
Við erum búin að setja íbúðina á sölu, kom eitthvað par á föstudaginn og einhver ætlar að koma í kvöld líka jibbýkóla:)
Set inn myndir frá Eimuvision fljótlega:)

27 október 2006

Eimuvision

Þá er það Eimuvision í kvöld og hvað haldið þið...daman ætlar að syngja, ójá og ekki einu sinni heldur tvisvar takk fyrir!!! Við erum fjórar sem ætlum að syngja Spank me bunny one more time í kanínubúningum eins og við Helga vorum í í sveitaferðinni góðu. Svo erum við 4 sem ætlum að syngja Flytjanda lagið "Góða ferð" það verður bara gaman hjá okkur.
Verð nú að segja frá því að hann jónmundur minn er svo aktívur í ræktinni að hann er með þessar líka heavy harðsperrur, hendurnar á honum eru fastar, hann getur ekki rétt úr þeim þessi elska, svaf greyið ekkert í nótt af verkjum við hverja einustu hreyfingu! Nema hvað hann vaknaði alveg úfinn og ætlaði að bleyta á sér hárið en var í vandræðum með þetta sökum hreyfihömlunar svo ég ætlaði að vera þessi elska og hjálpa honum en rak mig í kranann og vatnið varð alveg ískalt og honum brá náttlega, svo ætlaði ég að hita vatnið aftur og þá varð það allt of heitt og hann brenndi sig...ó mæ god hvað ég var ekki mikil elska því hann varð að sjálfsögðu soldið pirr pirr en ég gat ekki haldið í mér og hló bara að honum...ég bara réði ekki við mig og hann var ekkert allt of hress með mig!!! Fyrirgefðu Jónmundur minn:( Ég bara ræð stundum ekki við mig en þetta var alveg óvart:(
Góða helgi alle sammen og munið að kvitta:)

25 október 2006

Í kjólinn fyrir jólin...

Jæja þá á að fara að taka sig á!!! Þetta gengur bara ekki lengur ástandið á manni, Jónmundur er byrjaður í ræktinni af fullum krafti...mér finnst ég reyndar ekki koma því á dagskránna að fara í ræktina en ætla út að labba og svona í staðinn...hef bara nóg með skólann. En nú er bara að sjá hvort maður komist í kjólinn fyrir jólin. Það er samt hrikalega erfitt að koma sér af stað en við skötuhjúin erum jú búin að vera á leiðinni að taka okkur á í maaaaarga mánuði! Ég ætla að byrja á Myoplex light á morgun, einhverjar í vinnunni verða nú ánægðar með mig:) Nú er bara að standa sig!!!

23 október 2006

Sumarbústaðurinn

Sko...ég var búin að blogga heljarinnar blogg í gærkvöldi um ferðasöguna en viti menn það bara týndist einhvern vegin og ég hreinlega nenni barasta ekki að gera það aftur svo ég set inn nokkra punkta...
...lögðum af stað kl 4...mikið fjör á leiðinni...plottuðum leik: ég tilfinningavera, Aina snertisjúk, Helen spila sama lagið aftur og aftur, Rakel heilsufrík...
Við Helga sáum um matinn...lokuðum okkur af í eldhúsinu...hlógum mikið...grilluðum lambafille með kokkahúfur að sjálfsögðu...geðveikt gooootttt...lokuðum okkur aftur inn í eldhúsi...gerðum geðveika súkkulaðiköku í eftirrétt...á meðan hún bakaðist tókum við margar myndir af okkur í kanínubúningum...hlógum mikið...hlógum meira...hlógum mest...lágum í kasti yfir eigin fyndni...drukkum mikið og svo meira...allir í kasti þegar við komum fram sem bunny´s...
Fórum í leiki...sannleikann og kontor...ég hef aldrei...drukkum mikið mikið mikið...
Fórum í pottinn...fallegt veður...sá 20 stjörnuhröp...óskaði mér...óskaði mér meira en alltaf sama óskin...vorum í pottinum í 4 tíma...hlógum mikið mikið mikið...okkur var ís ís ískalt...vorum lengi að mana okkur upp úr pottinum...fórum loks inn um 5:30...vöktum þá sem voru farnir að sofa...vorum í kasti...sofnuðum um 6...
Vöknuðum um 10:30...borða...út að labba...kíkja á dýrin í sveitinni...fórum á Selfoss á KFC...ég gat ekki borðar ójjjj...þynka...heim að sofa!!!
En þetta var geðveikt gaman hjá okkur...hef ekki skemmt mér svona vel í langan tíma:)
Takk stelpur þið eruð æði:)


Við Helga að fara að grilla
Helen-Rakel-Ellen og Kristín Thelma
Skál Rakel og Þuríður
Bunny´s
Barbapabakojan 1.Aina, 2.Rakel, 3.Oddný
Gelllllurnar að grillllla góða matinn
Fyndnastar!!!

20 október 2006

Góða ferð...góða ferð...góða ferð...

Þetta Góða ferð lag var að gera mig vitlausa fyrir c.a. 2 vikum síðan en allt í einu fór ég að syngja með og bara fíla þetta...svo sem ekki annað hægt því 3 í vinnunni voru að fíla þetta svo svaðalega að þær hækkuðu alltaf í útvarpinu þegar þetta lag kom...nema hvað þetta er orðið að svona Flytjanda lagi og við erum alveg að missa okkur yfir þessu og erum komnar með textann á hreint og alles...nota bene...er alveg sá allra fáránlegasti texti sem ég hef á ævi minni séð!!! En þetta verður pottþétt sungið í sumarbústaðarferðinni sem við leggjum í eftir vinnu í dag:)
Við Helga ætlum að versla matinn og höldum smá leynd yfir fordrykk og eftirrétt en það verður bara JAMMÝ!!! hí hí hí:) Helen og Lilja ætla að versla áfengi...kaupa bara nóg stelpur mínar :) Helgin verður bara skemmtileg hjá mér:)
Góða helgi...góða ferð:)

18 október 2006

Helgin framundan:)

Endalaust er brjálað að gera hjá manni...nóg af verkefnum í skólanum...á meðal annars að taka viðtal við einhvern um eitthvað...lumar ekki einhver á snilldarhugmynd handa mér???
Á föstudaginn ætlum við skvísurnar í vinnunni í sumarbústað í boði vinnunnar og það verður sko geðveikt stuð hjá okkur...ég er bara farin að hlakka til:)
Róbert er hjá okkur núna og kemur svo aftur á laugardaginn þar sem við getum ekki tekið hann á föstudaginn og erum við búin að plana ferð í Ikea...þar sem við keyrum fram hjá nýja Ikea daglega þá er drengurinn búinn að fylgjast með byggingarframkvæmdum á húsinu í mjööööög langan tíma og getur ekki beðið eftir að fá að sjá afraksturinn...hann er búinn að velta fyrir sér í marga mánuði hvers konar barnaland verði...var jafnvel búinn að ímynda sér heljarinnar boltaland en við erum búin að komast að því að þar er Smálandið hans Emils í Kattholti og er hann spenntur að sjá hvernig það er allt saman litli kúturinn:)
Endalaust erum við Jónmundur á leiðinni í ræktina en einhvern vegin þá slugsum við það alltaf hreint...en þetta fer alveg að koma hjá okkur!!!
Maður var valin í nefnd til að sjá um Eimuvision (söngvakeppni Eimskips) sem er þarnæstu helgi og verður það nú aldeilis fjör hjá okkur:)

15 október 2006

Árshátíð JOCO

Við stigum upp í rútu fyrir utan Hótel Sögu kl 10 í gærmorgun, keyrðum upp í Gvendarbrunna en þaðan fáum við vatnið okkar, eftir stutta skoðunarferð biðu Guðmundur og félagar úr Orkuveitu Reykjavíkur með dýrindis Brunch handa okkur, alveg ótrúlega flott hjá þeim. Svo var brunað að Hallgrímskirkju en þar hittum við Birnu Þórðardóttur sem leiddi okkur í gegnum miðbæinn í hávaðaroki, grenjandi rigningu og skítakulda. Jóhann Ólafs sjálfur sýndi okkur hvar fyrirtækið byrjaði og gamlar sögur í tengslum við það allt saman. Okkur var orðið svooo kalt en þessi ganga stóð í 2 tíma...þegar þessu öllu saman var lokið skunduðum við upp á hótel og tjékkuðum okkur inn, beint í heitt bað og lögðum okkur aðeins...Svo hafði maður sig bara til í rólegheitunum og mættum í Sunnusal kl 19:00 í fordrykk. Laddi var skemmtanastjóri og sló hann alveg í gegn kallinn, hann er svo fyndinn að við öskruðum úr hlátri, hann tók eitt af mínum uppáhaldslögum: Ég pant spilá gítar!!! Maður söng með af innlifun alveg hreint og gert smá grín að manni fyrir vikið, en ég skemmti mér konunglega. Svo fengum við alveg þennan dýrindismat, hörpuskel, andalifrarterrife og hægeldaða önd í forrétt, dádýralund í aðalrétt sem var bara frábær og bráðnaði alveg í munninum á manni, svo í eftirrétt var G eð V eik Valhrona súkkulaðikaka jammí (G eð V eik er sem sagt í höfuðið á GV heildverslun!!!) svo spilaði Saga Class stuðtónlist fram á nótt. Þetta var alveg rosa vel heppnað og skemmtilegt kvöld. Það var einhver misskilningur með morgunmatinn en okkur var sagt að hann væri til 11 svo við mættum kl 10:10 í morgun en var vísað í burtu en þá kom í ljós að hann var bara til 10, við vorum þarna 4 pör sem fórum á sama tíma en hittumst svo öll fyrir algjöra tilviljun í Bakarameistaranum í hlíðunum :) Bara fyndið, allir að deyja úr hungri náttúrulega!!!
Kíktum svo á Guðmund í pizzu í kvöld sem var bara gott.
Helgin var í einu orði sagt frábær:)

12 október 2006

Spenningur fyrir helginni

Maður er að verða soldið spenntur fyrir helginni, fyrirtækið sem Jónmundur vinnur hjá er 90.ára og ætlar af því tilefni að bjóða starfsfólki og mökum upp á skemmtilegheit, við mætum kl 10 á laugardagsmorgun á Hótel Sögu, förum þaðan upp í rútu og gerumst túristar í Reykjavík, förum að skoða Gvendarbrunna og eitthvað...svo förum við upp á hótel og eigum frjálsan tíma frá 15-20 en þá mætum við í einhvern voða fínan mat og svo er einkaball fyrir okkur fram á nótt og svo þegar menn eru orðnir þreyttir þá fara menn bara á hótelherbergið sitt að lúlla sér:) verður örugglega ofsalega fínt og gaman:)
Annars er nú ósköp lítið að frétta af manni...ligg heima í leti eins og er, nenni engu. Gengur bara vel í skólanum, er að fá voða fínar einkunnir fyrir verkefni og próf svo það er bara allt í gúddí með það.
Endilega kommentið, það er svo gaman að vita hverjir eru að kíkja hérna á mig...
Góða helgi.

08 október 2006

Helgin...

Maður gerir fátt annað þessa dagana annað en að læra, vinna og sofa...ég hef ekki legið í leti síðan ég veit ekki hvenær:( Maður reynir nú samt aðeins að hitta ættingja og vini og fór ég því til Keflavíkur á föstudaginn eftir vinnu, kíkti á Hrafnhildi og co, sótti Bjarndísi sem var hjá okkur fram á kvöld, Róbert litli kom líka á föstudaginn litli kallinn...hress að vanda. Við Bjarndís skruppum í Snælandsvideo og sóttum ís fyrir liðið...mín skrautlegasta ísferð hingað til, litla stúlkan sem afgreiddi okkur sem var ekki mikið meira en fermd var að gera ís í fyrsta skipti og við náttla með bragðaref og vesen...Jónmundur fékk tonn af jarðarberjum í sinn en ég bara 2 stk en 5 matskeiðar af Daim og Bjarndís greyið vildi fá mars í sinn en það var klessa c.a. 10 cm í þvermál í skálinni og mín bara tróð þessu ofan í glasið með ísnum...ég sprakk úr hlátri vegna þess að mér fannst þetta fullmikið og svona misjafnlega vel skammtað í bragðarefina, aumingja stelpan roðnaði og ég spurði hvort þetta væri nú ekki soldið mikið að marsi og hún tók alveg smá af...svo hrærði hún þetta nánast ekkert og aumingja Bjarndís þurfti skál og hníf þegar heim var komið...
Við Jónmundur og Róbert gistum svo heima hjá Öddu mágkonu á laugardagsnóttina, vorum að passa fyrir hana...Jónmundur sá nú um þetta að mestu leiti þar sem ég var að læra á fullu. Róbert var alveg í skýjunum með að fá að vera svona lengi með Arnari frænda og við vissum hreinlega ekki af þeim í heilan sólarhring.
Við kíktum aðeins á ömmu bleiku en hún var að koma frá New York í morgun sú gamla, 80 ára og alltaf dreymt um að fara til USA og skellti sér bara í 10 daga til Mumma frænda...henni þótti þetta ótrúlega gaman, eitt fílaði hún þó ekki og það er hvað matarskammtarnir eru stórir, hún gat náttla ekkert borðað svona stóra skammta en henni fannst verst að afgangnum væri bara hent í ruslið. Hún meira að segja fór upp í Empire state building...eitthvað sem ég mundi ekki gera þó mér væri borgað vel fyrir...alveg þoli ég ekki lyftur og miklar lofthæðir...er meira svona jarðbundin;)
Danni vinur okkar á afmæli í dag og kíktum við á þau skötuhjú í kvöld í kaffi, fengum ljúffengar veitingar að vanda hjá húsmóðurinni henni Elínu...takk fyrir okkur:)
Eitthvað hefur borið á kvörtunum vegna bloggletis en þetta er ekki leti heldur bara tímaleysi...ég sver það...

05 október 2006


Smá umhugsun um að þó að lífið sé ekki alltaf dans á rósum hjá okkur þá er það aldrei svona slæmt...
 
Counters
Site Counter