Oddny bloggar

12 október 2006

Spenningur fyrir helginni

Maður er að verða soldið spenntur fyrir helginni, fyrirtækið sem Jónmundur vinnur hjá er 90.ára og ætlar af því tilefni að bjóða starfsfólki og mökum upp á skemmtilegheit, við mætum kl 10 á laugardagsmorgun á Hótel Sögu, förum þaðan upp í rútu og gerumst túristar í Reykjavík, förum að skoða Gvendarbrunna og eitthvað...svo förum við upp á hótel og eigum frjálsan tíma frá 15-20 en þá mætum við í einhvern voða fínan mat og svo er einkaball fyrir okkur fram á nótt og svo þegar menn eru orðnir þreyttir þá fara menn bara á hótelherbergið sitt að lúlla sér:) verður örugglega ofsalega fínt og gaman:)
Annars er nú ósköp lítið að frétta af manni...ligg heima í leti eins og er, nenni engu. Gengur bara vel í skólanum, er að fá voða fínar einkunnir fyrir verkefni og próf svo það er bara allt í gúddí með það.
Endilega kommentið, það er svo gaman að vita hverjir eru að kíkja hérna á mig...
Góða helgi.

8 Comments:

  • At 12/10/06 22:49, Anonymous Nafnlaus said…

    Kvitti kvitt. Þar sem mér finnst svo gaman þegar fólk kvittar þá verð ég að gera það líka. En ég er alltaf að tékka á þér :). Flott að allt gengur vel í skólanum og góða skemmtun um helgina. Verður örugglega rosa gaman og kósý.
    Kveðja Drífa

     
  • At 13/10/06 09:53, Anonymous Nafnlaus said…

    já þetta verður flott helgi hjá ykkur :)
    á meðan verð ég í vinnunni hehehe
    Góða helgi skvís!

     
  • At 13/10/06 09:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir það stelpur mínar,gaman að fylgjast með litla grallaranum þínum líka Drífa, hann er ekkert smá grallaralegur:)
    Þú átt ekki eftir að sjá eftir því að vinna svona mikið Helen, þegar þú finnur þér íbúð verðurðu svoooo ánægð með sjálfa þig:)

     
  • At 13/10/06 10:01, Anonymous Nafnlaus said…

    Ohhh hvað ég öfunda þig...
    Helgin hjá þér verður alveg geggjuð - og þú náttúrulega THE skvísan í pilsinu! :)
    Hafðu það mega gott um helgina og skemmtu þér súperdúper vel!

     
  • At 13/10/06 10:09, Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir það Helga mín, já það verður sko gaman hjá okkur, ég verð algjör pæja sko hehehe:)
    Takk og góða helgi sömuleiðis:)

     
  • At 13/10/06 13:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Þetta verður örugglega mjög skemmtilegt og næs að þurfa ekki að standa í leigubílaveseni eða vera úti í kuldanum bara fara á hótelherbergi :-)Góða helgi og góða skemmtun

     
  • At 13/10/06 19:33, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ!
    Maður fylgist nú með þér sko ;o)
    Alltaf gaman að lesa hvað er að gerast hjá þér.
    Vonandi skemmtir þú þér vel á morgun ;o)
    kveðja Íris og co
    Egilsst.

     
  • At 13/10/06 20:43, Anonymous Nafnlaus said…

    Ohhh það er svo gaman þegar fólk kommentar hjá manni, takk stelpur mínar:)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter