Oddny bloggar

12 júlí 2007

Það er leikur að læra...

...leikur sá er mér kær...
Ég gleymdi að taka það fram í síðustu færslum að ég komst inn í KHÍ, ég sótti um þrjár brautir og komst inn á þær allar, svo var hringt í mig frá HR og mér sagt að ég mundi fljúga þar inn líka en ég ákvað að taka Grunnskólakennarann sem hefur verið draumur minn í mörg ár.
Svo mín ætlar að verða kennari :)
Þetta er fjarnám og byrja ég núna í haust, ég er ekki alveg viss hvort þetta taki þrjú eða fjögur ár en það kemur nú bara í ljós.

09 júlí 2007

Myndasíða komin

http://www.flickr.com/photos/oddny

Ég á örugglega eftir að blogga eitthvað meira en kannski ekki einu sinni í viku.

07 júlí 2007








Ég er að sjá það að ég er ekki mikill bloggari, reyndar ætla ég að fara að opna ljósmyndasíðu á Flickr samfélaginu fljótlega og þá hugsa ég að ég loki þessari síðu.
Annars er það að frétta af okkur að við erum nýkomin úr tveggja vikna sumarfríi sem var alveg dásamlegt. Við byrjuðum á að halda upp á afmæli feðganna og svo aðra veislu fyrir krakkana úr leikskólanum hans Róberts sem var ótrúlega skemmtilegt en orkan var ekki mikil eftir á.
Svo skelltum við okkur í ferðalag um landið, við keyrðum til Eskifjarðar og tókum góðan tíma í það og stoppuðum mikið á leiðinni, bæði til að leyfa Róberti að hlaupa aðeins og sýna honum okkar fallega land.
Við gistum hjá Oddnýju og Sjonna á Eskifirði í 3 nætur. Við fórum í heimsókn á Egilsstaði, fórum í Atlavík þar sem við fórum með guttann í ótrúlega skemmtilega skógarferð.
Svo var brunað af stað og ákváðum við að fara norðuleiðina til baka bara svona til að leyfa Róberti að fara fyrstu hringferðina sína sem var voðalega gaman.
Við fórum því næst í sumarbústað í Brekkuskógi og vorum það í viku sem var æðislegt. Einn daginn skruppum við á Stokkseyri í Álfa og Tröllasafnið sem var ótrúlega skemmtilegt, risa trölli var sofandi sem Róberti leist nú ekki allt of vel á og vildi hann eiginlega bara fara út, en við töluðum hann í gegnum þetta og svo kom tröllabarn sem knúsaði hann og leiddi um allt safnið sem var mjög gaman af.
 
Counters
Site Counter