Oddny bloggar

04 desember 2007

20 dagar til jóla


Já það styttist heldur betur hratt í jólin, við erum búin að skreyta hér, vantar bara jólatréð en það kemur nú ekki strax.
Ég er að gera mína fyrstu tilraun í sörubakstri, botnarnir heppnuðust allavega mjög vel, þá er bara ekkert annað en að vinda sér í kremið.
Anna og Viktoría Sif voru hérna hjá mér í gær, ég átti til svampbotn og marengs og ákvað að setja saman Grétutertu fyrir okkur sem er nota bene fjölskyldutertan sem allir elska í minni fjölskyldu og vill svo til að þetta er tertan sem allir í Önnu fjölskyldu elska líka! Ég set á kökuna og ætla svo að setja hana inn í kælinn, þurfti aðeins að arisera fyrst svo hún kæmist fyrir og hélt á kökunni á meðan með annari hendi, áður en ég vissi af rann kakan svona af disknum en ég rétt náði að ýta disknum að þannig að bara smá marengs fór í gólfið en kremið gjörsamlega út um allt gólf og hillur og skúffur...algjör klaufi sem maður er en við Anna gátum allavega hlegið að þessu hahaha:)
Ég er komin með smá ljósmyndastúdíó hérna heima...reyndar bara svona smáredding, er búin að taka Fjólu Guðrúnu hennar Oddnýjar Svönu í jólamyndatöku og Viktoríu Sif hennar Önnu með stóru systir sinni henni Petreu, þær eru svo saman í mömmuklúbb og auglýstu mig, ein kom í morgun með þrjá stráka í myndatöku en litlinn var ekki nógu hress svo hún ætlaði að leyfa honum að leggja sig og koma svo bara aftur, þetta finnst mér sko ekki leiðinlegt:)
Hver veit nema þetta verði bara aukavinna hjá manni en ég er nú reyndar ekki komin með vinnu ennþá, fer þó í atvinnuviðtal á morgun úúúúúú spennandi:)
Hér snjóar bara, allt hvítt hjá okkur og er bara orðið ofsalega jólalegt um að lítast, ég hlakka mikið til jólanna enda mikið jólabarn í mér:)
Set smá sýnishorn hér af myndum;)
p.s. Takk fyrir öll kommentin í færslunni hér á undan, væri gaman ef allir væru alltaf svona duglegir að kvitta hehehe;)




3 Comments:

  • At 4/12/07 14:18, Blogger Helga Björg said…

    Kvitt kvitt! ;)

    En gaman að vera komin með smá studio :) Æðislegt alveg...

    Alltaf jafn flottar myndirnar þínar, það vantar ekki!!

    Hafðu það gott skvísin í snjónum :)

     
  • At 4/12/07 23:16, Anonymous Nafnlaus said…

    ohh hvað ég öfunda þig af snjónum, það rignir bara hér eins og alltaf.

    Gott hjá þér að vera komin með studio :-)

     
  • At 7/12/07 14:31, Anonymous Nafnlaus said…

    Ohh ég vildi að þú byggir ennþá í bænum og værir með stúdíó hérna :) Mig vantar svo svona snilling eins og þig til að taka myndir af strákunum.

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter