Oddny bloggar

06 desember 2007

Eigi auðnuleysingi lengur!

Ég er komin með vinnu í Alcoa-deild Grunnskólans á Eskifirði, þar eru börn starfsmanna Alcoa sem fara líklega öll til síns heimalands í vor, þetta eru krakkar á öllum aldri og eru þau með námsefni frá Bandaríkjunum. Ég fór að skoða í gær og leist mér afskaplega vel á þetta og hlakka bara til að byrja en ég fer í smá aðlögun 13, 14, 17 og 18 desember og byrja svo á fullum krafti í janúar.
Nú ætla ég á fullt í jólabaksturinn, er þó búin með sörurnar sem ég var að baksa við í síðustu færslu og heppnuðust þær alveg ofsalega vel, ég þarf bara að baka meira af þeim þar sem það við erum svona að laumast í eina og eina;)

Við hjúin ætlum að skella okkur upp í Egilsstaði um helgina og klára jólagjafirnar, svo er bara að skrifa í jólakortin og koma þessu frá sér, kostar ekki 500 kall að senda pakka með Flytjanda ef maður getur borið hann inn? Þá treður maður bara mörgum saman hehe;)

Set mynd hérna af einum afskaplega sætum sem var í myndatöku hjá mér um daginn;)

4 Comments:

  • At 7/12/07 14:32, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með vinnuna :)

     
  • At 7/12/07 16:42, Blogger Oddny Inga said…

    Takk fyrir það Ásdís:) Þú verður bara að koma í sveitina með ormana svo ég geti tekið myndir af þeim hehe;)

     
  • At 8/12/07 14:30, Anonymous Nafnlaus said…

    Það er 600 krónur þetta árið c",)
    Til hamingju með vinnuna.
    Vonandi hafið þið það gott þarna fyrir austan :o)

     
  • At 8/12/07 23:49, Anonymous Nafnlaus said…

    Alli var einmitt á Eskifirði í dag. Hann er að vinna á Austfjörðunum um alla helgina. Hefði átt að fara bara með honum og kíkja á þig :)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter