Oddny bloggar

25 október 2007

Veðrið er skítlegt!!!


Þegar við vöknuðum í morgun var ógeðslegt veður úti, hífandi rok og grenjandi rigning!
Ég sagði Jónmundi bara að fara á bílnum...ég nefnilega nennti ekki á fætur kl 7 !!!

Ég bakaði bananabrauð í gærkvöldi og svo horfðum við á Kaldaljós, spes mynd...alveg áhugaverð en samt svona...þung og típísk íslensk mynd en alltaf gaman að sjá íslenskar myndir samt sem áður.

Ef menn ætla að lesa fríu blöðin eins og 24 stundir og Fréttablaðið þá þarf fólk einfaldlega að ná í það út í sjoppu hér á Esk, en mér til mikillar undrunar komu þau inn um lúguna í morgun en ég skyldi ekkert í því, svo kom Hrönn í kaffi og tjáði mér að hún hefði komið með þau, bankað greinilega mjög létt því ekki heyrði ég í henni...en flott þjónusta hehehe.

Jæja ætla að glápa á Bold!!!

22 október 2007



Við komum til Eskifjarðar á sunnudaginn, degi fyrir áætlun en það reddaðist nú alveg fyrir horn með góðri hjálp ættingja og vina.

Við vorum búin að stressa okkur allt of mikið fyrir þessa flutninga og það var nú bara algjör vitleysa því við vorum fljót að átta okkur á að það er virkilega gott að vera hér í firðinum fagra.

Eins og einhverjir vissu að þá ætlaði ég að fara að vinna hérna á leikskólanum sem er hér í næstu götu við mig og hlakkaði ég mikið til. En nú er ég hætt við, ástæðan er einfaldlega sú að ég get ekki sætt mig við láglaunastefnu í þessum geira, ég vissi að launin væru lág en ég vissi samt ekki að þau rétt skríða yfir lágmarkslaun! Ef ég hefði tekið vinnuna þá hefði ég verið að samþykkja þessa fáránlegu stefnu sem löngu er orðið tímabært að breyta og bæta!

Svo nú er ég bara atvinnulaus húsmóðir að skrúbba gólf og hengja út þvott í góða veðrinu hérna...jú og náttúrulega að blogga en ég hugsa að ég taki mig á í því og reyni að vera í takt við nútímann og blogga kannski aðeins oftar en ég hef gert hingað til:)

Jónmundur er á fullu í sinni vinnu, undirbúa og svona, hann er núna á námskeiði með Guðna sem er einn af kokkunum en þau fluttu viku á undan okkur og svo koma Þráinn, Anna og prinsessan um helgina næstu.

Við stefnum á að fara suður á sunnudaginn, græja það sem við náðum ekki að græja áður en við fórum og sækja Róbert en hann ætlar að koma í vetrarfríinu sínu og vera hjá okkur í sveitinni, eins gott að undirbúa herbergið hans áður en kúturinn kemur:)

Við ætlum að reyna að fara í Toys r us, við erum alveg æst í að komast í þessa búð hahaha!!!

Kveðja að austan!
Oddný og Jónmundur:)
 
Counters
Site Counter