Oddny bloggar

31 janúar 2007

Fyrir blondínur og fleiri:)

Fyrsta spurning:
Þú tekur þátt í keppni. Þú ferð framúr þátttakandanum sem er annar í röðinni.Hvar í röðinni ert þú þá?

Svar: Ef þú svaraðir að þú sért í fyrsta sæti, hefurðu algjörlega rangt fyrirþér!Ef þú ferð fram úr þeim í öðru sæti, þá tekur þú sæti hans/hennar, þú ert íöðru sæti!
Reyndu nú að klúðra ekki næstu spurningu.
Til að svara annarri spurningu, reyndu að taka ekki eins mikinn tíma og í þeirri fyrstu.

Önnur spurning: Ef þú ferð fram úr þeim er síðastur í röðinni, ert þú í....?

Svar: Ef þú svaraðir að þú sért næst síðust/síðastur, hefurðu rangt fyrir þéraftur. Hvernig er hægt að fara fram úr öftustu manneskju?Þú ert ekki góð(ur) í þessu! Rétt?

Þriðja spurning: Mjög vandasamt dæmi! Athugaðu: Þú mátt aðeins leysa það í huganum.Ekki nota pappír eða reiknivél. Reyndu.Taktu 1000 bættu við 40. Bættu svo við 1000. Síðan bætirðu við 30 og svo 1000.Bættu við 20 og svo 1000 og að síðustu bætirðu við 10. Hver er útkoman?

Svar: Fékkstu út 5000?Rétt svar er reyndar 4100.Trúirðu því ekki? Prófaðu dæmið með reiknivélinni þinni!Þetta er ekki þinn dagur eða hvað? Kannski þú hafir síðustu spurninguna rétta?

Fjórða spurning: Pabbi Maríu á 5 dætur: 1. Nana, 2. Nene, 3. Nini, 4. Nono.Hvað heitir sú fimmta?

Svar: Nunu?NEI! Auðvitað ekki. Hún heitir María. Lestu spurninguna aftur.

Jæja, bónus spurningin: Það er mállaus manneskja sem ætlar að kaupa tannbursta. Með því að sýnatannburstun með látbragði tekst henni að koma afgreiðslufólkinu í skilning umhvað hún vill og kaupir tannburstann.En ef það er blindur maður sem vill kaupa sólgleraugu, hvernig ætti hann að tjáósk sýna?

Svar: Hann þarf bara að opna munninn og óska eftir því sem hann vill, svoeinfalt...

29 janúar 2007

Moulin rouge


Mig vantar svona hatt!!!
Á einhver svona eða vitið þið hvar ég get fengið svona? Mig vantar helst tvö stykki en öll aðstoð er vel þegin...það er árshátíð hjá okkur í Eimskip og þemað er Moulin Rouge...
Endilega látið mig vita ef þið getið aðstoðað mig:)

15 janúar 2007

Íbúðarkaup

Einhverjir eru að kvarta undan bloggleti hjá mér undanfarið en það er bara svo mikið að gerast hjá okkur að það er ekkert venjulegt...
Eins og fram kom í síðasta bloggi að þá trúlofum við okkur á aðfangadag, seldum á gamlársdag og erum núna að gera tilboð í geggjaða íbúð en hér er slóðin fyrir þá sem vilja kíkja.
Þessi íbúð er á fyrstu hæð og okkur finnst hún allavega algjör draumur í dós og erum bara með hjartað í buxunum að bíða eftir svari og græja og gera.
Annars vakti snjórinn um helgina mikla lukku í okkar koti, fórum á sleða, duttum á hausinn og vorum alveg úrvinda eftir þriggja tíma útiveru...fórum svo í kaffi til Elínar og Danna, takk æðislega fyrir vöfflurnar kjella :)
Allt bara komið í fastar skorður fyrir utan að vera á milli íbúða, skólinn byrjaður aftur eftir jólafrí og er ég bara nokkuð spennt yfir önninni.
Myndirnar sem áttu að koma með síðasta bloggi...jaaaa mér gekk eitthvað illa að setja þær inn en kem til með að græja það um leið og tækifæri gefst...
Þar til næst,
Veriði sæl:)

02 janúar 2007

BÓNORÐ Í JÓLAGJÖF:)

Já hann Jónmundur minn fór á skeljarnar á aðfangadag og ég sagði JÁ að sjálfsögðu enda GULL að manni og gæti ég ekki hafa fundið betri mann:)
Jónmundur er soddan smekkmaður og valdi svo gullfallegan hring handa mér, ég hefði ekki getað valið hann betri sjálf.
Pabbi, Bjarndís og Veigar voru hjá okkur og það var alveg meiriháttar að fá að hafa þau, við borðuðum hefðbundinn hamborgarhrygg, opnuðum pakka og spiluðum, Aron kom svo í kaffi og meððí:)
Pabbi fór svo út aftur milli jóla og nýárs en það var svo gott að hafa hann.
Þetta voru þau allra bestu jól sem ég hef átt á allri minni ævi:)
Gamlárskvöldi eyddum við svo hjá Kolla bróður Jónmundar og fjölskyldu þeirra, við borðuðum góðan mat og sprengdum mikið, æðislega gaman hjá okkur:)
Í hádeginu á Gamlársdag seldum við líka íbúðina, þetta gerðist mjög hratt og erum við ekki alveg búin að átta okkur á þessu ennþá en erum farin á fullt að leita að nýrri eign:)
Nýjársfagnaður hjá Þresti og Auði í gær sem var alveg ótrúlega gaman, strákarnir elduðu geggjaðan mat handa okkur og svo var spilað fram á nótt, ég kynntist nýrri hlið á mínum í gær en það kom í ljós að hann er keppnismaður mikill, ætlaði hann aldeilis að rústa okkur stelpunum en við unnum náttla hehehe:)
Myndirnar tala svo bara sínu máli:)
Gleðilegt nýtt ár alle sammen:)
 
Counters
Site Counter