30 mars 2008
24 mars 2008
15 vikur og 2 dagar
Já þá er það loksins orðið almennilega opinbert!
Við eigum von á litlu kríli í september:)
Allt hefur gengið mjög vel so far sjö níu þrettán!!!
Ég er reyndar alveg endalaust þreytt og legg mig á daginn eins og ungabarn og er oftar en ekki komin í rúmið rétt eftir fréttir;)
Það sást á mér mjööööög fljótt og var ég í mestu vandræðum með að fela bumbuna, sérstaklega þó fyrir Róberti en við vildum ekki segja honum of snemma. Hann fékk að vita þetta núna um helgina og er hann mjög spenntur að verða stóri bróðir! Hann vonast nú eftir að fá bróðir...já já það kemur nú bara í ljós hehehe.
Þar hafið þið það!
Ein af bumbunni 15+2;)
20 janúar 2008
Hæ hæ!
Ósköp lítið að frétta héðan...bara vinna, éta, sofa!
En hér eru nokkrar myndir fyrir Gumma!
Og ein af Jónmundi fyrir utan útidyrnar hjá okkur í dag:)
01 janúar 2008
Gamlárskvöld
GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2008
Við vorum svo lukkuleg að okkur var boðið í mat til Þráins, Önnu og stelpnanna.
Við vorum mætt til þeirra um sjöleytið, strákarnir kláruðu að græja matinn á meðan við Anna fengum okkur ljúffengan Mojito!
Svo var sest til borð og gjörsamlega borðað yfir sig, við fengum kalkún og tilheyrandi sem var alveg sjúklega gott.
Eitthvað var sprengt upp fyrir áramótaskaupið svona til þess að láta tímann líða en svo hlömmuðum við okkur öll fyrir framan sjónvarpið til þess að horfa á þennan árlega þátt sem tekst misvel til, mér fannst þetta allt í lagi en ekkert meira en það.
Rétt áður en skaupið kláraðist tókum við eftir því að mikinn reyk lagði úr húsinu fyrir neðan okkur eða um 10 metrum frá og á sömu stundu sáum við Bjögga og Láru frænku hlaupa þarna fyrir utan og kalla að það væri gas og súr inn í húsinu, strákarnir hlupu út til að kanna ástandið. Bjöggi hringdi í slökkvilið og enginn vissi hvort fólk væri inni eða ekki og var farið í að athuga það en það var mannlaust sem betur fer, við Anna myndskreyttum þetta agalega og vorum farnar að tárast því við sáum fyrir okkur börnin borin út.
Bíll fólksins sem á heima þarna lá þétt upp við húsið og var fólk hrætt um að hann yrði eldinum að bráð en eigandinn kom svo og náði að færa hann.
Slökkviliðið mætti svo á svæðið og fóru í það að vinna sína vinnu, um 1,5 tíma síðar kom grafa að rífa upp þakið svo hægt væri að slökkva eldinn endanlega.
Það rann algjörlega af okkur öllum og duttum bara úr öllu stuði en urðum svo allt í einu vör við að klukkan var miðnætti og kysstumst öll og reyndum að hressa okkur við, skelltum okkur út og skutum einhverju upp.
Jónmundur keypti þrjár kökur en skaut bara einni upp, þá bara eigum við fyrir þrettándann:)
Strákarnir púuðu ekta kúbverskan vindil sem þeim þótti voða gaman af en þeir reykja hvorugir svo þetta var hálfspaugilegt, ég var fengin til að prufa líka en þótti nú ekkert spes, gaman að þessu samt:)
Þegar klukkan var farin að ganga þrjú voru slökkviliðsbílar, sjúkrabílar ofl ennþá fyrir neðan hús og lokuðu þar með innkeyrslunni til Þráins og Önnu og við gátum því ekki keyrt heim svo við klæddum okkur vel og örkuðum af stað heim á leið, veðrið var nú ekki það besta og þegar við vorum hálfnuð þá stoppa hjón út í kanti og bjóða okkur far heim, kom svo í ljós að þetta voru nágrannar okkar sem búa fyrir aftan hús hjá okkur, yndislegt fólk:)
Ég vona að þið hafið átt yndisleg áramót, þau voru soldið sérstök hjá okkur.
Sjáumst hress á nýja árinu sem var að ganga í garð:)
Ég, Viktoría og Petrea
Ég, Viktoría og Petrea
Eldurinn logar glatt!!!
Tekið heiman frá Láru
30 desember 2007
Myrkur og kósýheit!
Þá eru jólin að ganga yfir og gamlárs á morgun, rosalega líður tíminn hratt:)
Við höfðum það ofsalega gott yfir jólin, pabbi og Veigar voru hjá okkur og slökuðum við þrjú bara vel á en Jónmundur greyið þurfti að vinna yfir hátíðirnar, hann kom þó heim í matinn en þurfti að fara svo aftur til þess að rúlla næturmatnum yfir, þetta hafðist allt hjá kallinum en mikið var hann samt orðinn þreyttur.
Við fengum margt fallegt í jólagjöf þetta árið og þökkum við öllum kærlega fyrir okkur og Róbert en hann kom nokkrum dögum fyrir jól og héldum við þá litlu jólin þar sem hann opnaði gjafir frá okkur og okkar fólki sem var mjög gaman. Við gáfum honum bílabraut sem við sáum fyrir okkur í herberginu hans en vorum fljót að átta okkur á því að hún kæmist nú ekki fyrir þar því hún er þrír metrar á lengdina svo henni var bara skellt saman í bílskúrnum, þetta þótti kútnum ekki leiðinlegt enda mikill bílakall og þarna sátum við frá morgni fram á kvöld í bílaleik hehehe:)
Jónmundur yndislegi gaf mér skíði og fylgihluti sem mig hefur langað í lengi, algjör perla:)
Ég gaf honum veiðistöng sem hann hefur langað í lengi:)
Pabbi og Veigar fóru aftur suður á annan í jólum sem betur fer eiginlega þó ég hefði gjarnan viljað hafa þá lengur en það gerði ægilega vont veður daginn eftir að ég hefði ekki viljað keyra þá.
Nú sit ég ein heima og rafmagnið er búið að fara þrisvar af hjá mér í dag, það er kolniðamyrkur úti og brjálað veður, rigning og hífandi rok þannig að þegar rafmagnið fór fyrst af þá sá ég ekki glóru en fartölvan var í gangi svo ég gekk með hana inn í bílskúr og fann eldspýtur þar og á náttla alveg helling af kertum og kveikti á þeim, mikið var það kósý. Ég er nú eiginlega ekki alveg að fatta hvað er í gangi akkúrat núna en það er rafmagnslaust en samt ljós í eldhúsinu og ganginum en sjónvarpið vill ekki í gang og ekki jólaseríurnar mínar hmmm spurning um að maður fari og kanni hvað er í gangi eiginlega!
Ég óska ykkur öllum Gleðilegs nýs árs:)
Kveðja, Oddný í myrkrinu!

24 desember 2007
Jólin eru að renna í hlaðið!
Mig langar bara til þess að óska ykkur sem lesið þetta blogg,
Gleðilegra jóla og farsæls nýs árs!
Hafið það gott yfir hátíðirnar elskurnar mínar:)
Hér eru hvít jól og hingað eru pabbi og Veigar komnir til að vera yfir jólin:)
18 desember 2007
Óboðinn næturgestur
Á sunnudagskvöld vorum við hjúin alveg dauðþreytt eftir amstur helgarinnar, við fórum í rúmið og gátum engan vegin sofnað, ég kveikti á sjónvarpinu og við horfðum til að verða 1 um nóttina. Svo reyndum við að sofna...ekkert gekk og kl 1:30 þá heyrði ég að einhver var frammi, ég heyrði einhvern á vappinu og eitthvað datt og svo heyrði ég eitthvað "klikk" eins og einhver væri að kveikja og slökkva á ljósum...ég pikka í Jónmund og segi honum að það sé einhver inn í húsinu, hann stökk á fætur og ég á eftir...við örkuðum um allt húsið og meira að segja upp á háaloft en fundum engan svo við lokuðum öllum hurðum og fórum aftur upp í rúm...og ennþá gátum við ekki sofnað þó dauðþreytt værum!
Kl 3:30 erum við ennþá vakandi og þá heyri ég mjálm...andskotinn sögðum við bæði sem hvorugt erum þekkt fyrir mikla velvild í garð katta...okkur finnst kettir vera ógeðslegir!!!
Við örkum af stað og leitum og leitum...inn í öllum herbergjum...bak við sófa...bak við gardínur...inn í bílskúr og upp á háalofti en ekkert fundum! Þegar þarna er komið við sögu erum við orðin illa rauðeygð af þreytu og ansi pirruð...ekki besta formúlan til þess að sofna en við dottuðum þarna einhvern tíman um 4 leytið.
Við vöknum um 7, vorum bæði að fara í vinnuna þegar helvítið byrjar að mjálma aftur, ég mjálma á móti og alltaf svaraði kötturinn mér svo við gengum á hljóðið...haldiði að helvítið hafi ekki verið upp á háalofti allan tímann og þorði ekki niður, ég fer upp í fússi og ætla að ná honum en nei nei þá tekur minn upp á því að fela sig lengst inn í horni á bakvið dekk og kassa og töskur!!!
Nú var Jónmundi nóg boðið og hann kom stormandi upp á loft líka og náði hann að fæla kvikindið niður stigann!
Kötturinn fór beint inn í þvottahús og upp í glugga þar en glugginn var lokaður svo hann komst ekki út...við vorum bæði orðin sótsvört í framan og kötturinn skyldi út!!! Mér datt það snjallræði í hug að grípa í hnakkadrambinn á honum og grýta honum út svo hann skyldi muna það að hingað sé hann ekki velkominn, ég næ í hnakkann en sleppi um leið því kötturinn hvæsti svoleiðis á mig og var klár með klærnar...hann minnti á ROTTU!!! Ég öskraði af hræðslu og hljóp inn í bílskúr og Jónmundur gerði sig kláran í næstu lotu...hann náði að ýta kvikindinu úr glugganum og þar með hljóp hann út!!!
Annars er það að frétta að eldhúsið í álverið opnaði í dag og var minn maður ásamt Þránni og Guðna að vinna til að verða 1 í gærkvöldi og var farinn út rúmlega 5 í morgun!!! Hádegið gekk samt að óskum þó færri hefðu mætt en þeim var sagt svo þeir sitja uppi með hellings afgang!
Ég er búin með mína aðlögun í skólanum og er komin í jólafrí:)