Oddny bloggar

15 október 2006

Árshátíð JOCO

Við stigum upp í rútu fyrir utan Hótel Sögu kl 10 í gærmorgun, keyrðum upp í Gvendarbrunna en þaðan fáum við vatnið okkar, eftir stutta skoðunarferð biðu Guðmundur og félagar úr Orkuveitu Reykjavíkur með dýrindis Brunch handa okkur, alveg ótrúlega flott hjá þeim. Svo var brunað að Hallgrímskirkju en þar hittum við Birnu Þórðardóttur sem leiddi okkur í gegnum miðbæinn í hávaðaroki, grenjandi rigningu og skítakulda. Jóhann Ólafs sjálfur sýndi okkur hvar fyrirtækið byrjaði og gamlar sögur í tengslum við það allt saman. Okkur var orðið svooo kalt en þessi ganga stóð í 2 tíma...þegar þessu öllu saman var lokið skunduðum við upp á hótel og tjékkuðum okkur inn, beint í heitt bað og lögðum okkur aðeins...Svo hafði maður sig bara til í rólegheitunum og mættum í Sunnusal kl 19:00 í fordrykk. Laddi var skemmtanastjóri og sló hann alveg í gegn kallinn, hann er svo fyndinn að við öskruðum úr hlátri, hann tók eitt af mínum uppáhaldslögum: Ég pant spilá gítar!!! Maður söng með af innlifun alveg hreint og gert smá grín að manni fyrir vikið, en ég skemmti mér konunglega. Svo fengum við alveg þennan dýrindismat, hörpuskel, andalifrarterrife og hægeldaða önd í forrétt, dádýralund í aðalrétt sem var bara frábær og bráðnaði alveg í munninum á manni, svo í eftirrétt var G eð V eik Valhrona súkkulaðikaka jammí (G eð V eik er sem sagt í höfuðið á GV heildverslun!!!) svo spilaði Saga Class stuðtónlist fram á nótt. Þetta var alveg rosa vel heppnað og skemmtilegt kvöld. Það var einhver misskilningur með morgunmatinn en okkur var sagt að hann væri til 11 svo við mættum kl 10:10 í morgun en var vísað í burtu en þá kom í ljós að hann var bara til 10, við vorum þarna 4 pör sem fórum á sama tíma en hittumst svo öll fyrir algjöra tilviljun í Bakarameistaranum í hlíðunum :) Bara fyndið, allir að deyja úr hungri náttúrulega!!!
Kíktum svo á Guðmund í pizzu í kvöld sem var bara gott.
Helgin var í einu orði sagt frábær:)

4 Comments:

  • At 16/10/06 08:07, Anonymous Nafnlaus said…

    Vá þetta hefur verið frábær helgi!! :o)
    Gott að þetta heppnaðist vel skvízí ;)

     
  • At 17/10/06 13:49, Anonymous Nafnlaus said…

    hæpæ
    Þú verður nú að vera orðin hress fyrir föstudaginn ;)

     
  • At 17/10/06 14:22, Blogger Helga Björg said…

    Sælar

    Gaman að heyra hvað það var gaman hjá ykkur... æðipæði!! :)

    Láttu þér nú batna skvísin mín! ;)

     
  • At 18/10/06 08:42, Blogger Oddny Inga said…

    Já þetta var ótrúlega gaman stelpur mínar:)
    Og verður geðveikt fjör hjá okkur um helgina:)
    Takk takk:)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter