Oddny bloggar

10 desember 2007

Upp á stól...!!!

Haldiði að mín sé ekki búin með jólagjafirnar!!! Svei mér þá, ég er meira að segja búin að pakka inn helmingnum! Ég ætla að reyna að klára þetta í dag og senda í borgina!
Þá á eftir að skrifa á jólakortin en ég er búin að prenta út myndirnar og líma inn í kortin!
Ég stefni líka á að baka sörubotna í dag og hnoða í lagtertu!

Þegar ég var lítil söng ég alltaf:

Jólasveinar ganga um gólf með gylltan staf í hendi
Móðir þeirra sópar gólf og flengir þá með vendi
Upp á stól stendur mín kanna
Níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna

Í dag er ég á þeirri skoðun að textinn sé eftirfarandi:

Jólasveinar ganga um gólf með GILDAN staf í hendi
Móðir þeirra sópar gólf og flengir þá með vendi
Upp á HÓL STEND ÉG OG KANNA
Níu nóttum fyrir jól þá kem ég til manna.

Mér finnst þetta hreinlega meika meira sens en gamli góði upp á stól stendur samt alveg fyrir sínu og þegar ég vann á leikskóla hér á árum áður þá ruglaðist ég alltaf og blandaði ég alltaf gömlu og nýju útgáfunni saman og út kom einhver óskiljanlegur hrærigrautur.

3 Comments:

  • At 10/12/07 22:44, Anonymous Nafnlaus said…

    Gaman væri að vita hvaðan þetta er komið... upp á stól stendur mín kanna!!! en ég söng þetta svona sjálf en hitt "MEIKAR" meiri "SENS"
    Frétti að þú hefðir verið á Héraðinu um helgina, er geggjað fúl yfir að þú hafir ekki kíkt við :-O djók
    En annars bara til lukku með vinnuna og vonandi á þetta bara eftir að vera gaman hjá þér.
    Sjáumst nú vonandi eitthvað fyrir jólin.
    Kveðja að "ofan" (hahaha)
    Íris og co

     
  • At 11/12/07 08:57, Anonymous Nafnlaus said…

    nei nei nú ertu búin að baka yfir þig held ég!!
    Stóllinn er svokallaður könnustóll þar sem jólaölið var geymt á.
    Ekkert hólakjaftæði :)
    En ég er sammála þer með gilda stafinn...
    Kv. Drífa

     
  • At 14/12/07 11:38, Blogger Helga Björg said…

    Ég er líka búin með allar jólagjafirnar og búin að pakka þeim næstum öllum inn! :)
    Very nice :)

    Um helgina verður svo opnuð vínflaska og skrifað á jólakortin!

    Við Gulli tókum til og þrifum heima í gær... vantar samt loka tötsið á þetta :) Verður gert í næstu viku!

    En já... jólin mega bara fara að koma sér núna! :) Er að verða eins og litlu krakkarnir!

    Já og heyrðu.... svo er náttúrulega bara vitlaust veður og ég að keyra á Grundartanga í rokrassgati uppá 40m/sek... hélt ég myndi deyja á leiðinni - sveið í axlirnar því ég var svo stíf við að halda bílnum á veginum! Og ekki verður það betra á leiðinni heim... grenj...

    Held ég láti þetta bara duga í bili! hehehe...
    Hafðu það gott skvísí :)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter