Oddny bloggar

27 október 2006

Eimuvision

Þá er það Eimuvision í kvöld og hvað haldið þið...daman ætlar að syngja, ójá og ekki einu sinni heldur tvisvar takk fyrir!!! Við erum fjórar sem ætlum að syngja Spank me bunny one more time í kanínubúningum eins og við Helga vorum í í sveitaferðinni góðu. Svo erum við 4 sem ætlum að syngja Flytjanda lagið "Góða ferð" það verður bara gaman hjá okkur.
Verð nú að segja frá því að hann jónmundur minn er svo aktívur í ræktinni að hann er með þessar líka heavy harðsperrur, hendurnar á honum eru fastar, hann getur ekki rétt úr þeim þessi elska, svaf greyið ekkert í nótt af verkjum við hverja einustu hreyfingu! Nema hvað hann vaknaði alveg úfinn og ætlaði að bleyta á sér hárið en var í vandræðum með þetta sökum hreyfihömlunar svo ég ætlaði að vera þessi elska og hjálpa honum en rak mig í kranann og vatnið varð alveg ískalt og honum brá náttlega, svo ætlaði ég að hita vatnið aftur og þá varð það allt of heitt og hann brenndi sig...ó mæ god hvað ég var ekki mikil elska því hann varð að sjálfsögðu soldið pirr pirr en ég gat ekki haldið í mér og hló bara að honum...ég bara réði ekki við mig og hann var ekkert allt of hress með mig!!! Fyrirgefðu Jónmundur minn:( Ég bara ræð stundum ekki við mig en þetta var alveg óvart:(
Góða helgi alle sammen og munið að kvitta:)

7 Comments:

  • At 27/10/06 11:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Gefðu honum myoplex og glútamín :o)

     
  • At 27/10/06 11:32, Anonymous Nafnlaus said…

    hahaha, það bara er ekki hægt annað en að hlæja að svona harðsperrum, það er einmitt svipað á mínu heimili. Þið eigið eftir að rústa keppninni með góða ferð :-)eins gott að þið fáið verðlaun

     
  • At 27/10/06 15:03, Blogger Helga Björg said…

    Skemmtu þér vel í kvöld og vertu okkur til sóma... hehe...


    EN já þú ert alveg fyndin, reyna að hjálpa þínum heitt elskaða og meiðir hann svo bara... heheh :) Þú ert frábær!!!

     
  • At 27/10/06 16:02, Anonymous Nafnlaus said…

    Hehe ég hefði viljað sjá þetta hefði líklegast legið í gólfinu af hlátri :) algjör snillt, en skemmtu þér rosalega vel í kvöld.

     
  • At 27/10/06 16:02, Anonymous Nafnlaus said…

    já þetta er fyndið:) Takk Helga við rústum þessu:) Góða helgi:)

     
  • At 29/10/06 15:45, Anonymous Nafnlaus said…

    svo seinheppin stundum... en það er ekkert nýtt fyrir mig svosem hehe ;)

    knús og klemms
    Sys

     
  • At 29/10/06 20:30, Anonymous Nafnlaus said…

    Hehe þú ert æði :o) Sé þetta alveg fyrir mér sko..... híhí
    Kveðja Ásdís

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter