Oddny bloggar

08 október 2006

Helgin...

Maður gerir fátt annað þessa dagana annað en að læra, vinna og sofa...ég hef ekki legið í leti síðan ég veit ekki hvenær:( Maður reynir nú samt aðeins að hitta ættingja og vini og fór ég því til Keflavíkur á föstudaginn eftir vinnu, kíkti á Hrafnhildi og co, sótti Bjarndísi sem var hjá okkur fram á kvöld, Róbert litli kom líka á föstudaginn litli kallinn...hress að vanda. Við Bjarndís skruppum í Snælandsvideo og sóttum ís fyrir liðið...mín skrautlegasta ísferð hingað til, litla stúlkan sem afgreiddi okkur sem var ekki mikið meira en fermd var að gera ís í fyrsta skipti og við náttla með bragðaref og vesen...Jónmundur fékk tonn af jarðarberjum í sinn en ég bara 2 stk en 5 matskeiðar af Daim og Bjarndís greyið vildi fá mars í sinn en það var klessa c.a. 10 cm í þvermál í skálinni og mín bara tróð þessu ofan í glasið með ísnum...ég sprakk úr hlátri vegna þess að mér fannst þetta fullmikið og svona misjafnlega vel skammtað í bragðarefina, aumingja stelpan roðnaði og ég spurði hvort þetta væri nú ekki soldið mikið að marsi og hún tók alveg smá af...svo hrærði hún þetta nánast ekkert og aumingja Bjarndís þurfti skál og hníf þegar heim var komið...
Við Jónmundur og Róbert gistum svo heima hjá Öddu mágkonu á laugardagsnóttina, vorum að passa fyrir hana...Jónmundur sá nú um þetta að mestu leiti þar sem ég var að læra á fullu. Róbert var alveg í skýjunum með að fá að vera svona lengi með Arnari frænda og við vissum hreinlega ekki af þeim í heilan sólarhring.
Við kíktum aðeins á ömmu bleiku en hún var að koma frá New York í morgun sú gamla, 80 ára og alltaf dreymt um að fara til USA og skellti sér bara í 10 daga til Mumma frænda...henni þótti þetta ótrúlega gaman, eitt fílaði hún þó ekki og það er hvað matarskammtarnir eru stórir, hún gat náttla ekkert borðað svona stóra skammta en henni fannst verst að afgangnum væri bara hent í ruslið. Hún meira að segja fór upp í Empire state building...eitthvað sem ég mundi ekki gera þó mér væri borgað vel fyrir...alveg þoli ég ekki lyftur og miklar lofthæðir...er meira svona jarðbundin;)
Danni vinur okkar á afmæli í dag og kíktum við á þau skötuhjú í kvöld í kaffi, fengum ljúffengar veitingar að vanda hjá húsmóðurinni henni Elínu...takk fyrir okkur:)
Eitthvað hefur borið á kvörtunum vegna bloggletis en þetta er ekki leti heldur bara tímaleysi...ég sver það...

6 Comments:

  • At 9/10/06 09:02, Anonymous Nafnlaus said…

    jei!!! :o)
    Færð stig fyrir blogg í þetta sinn :)
    Gott að þú hefur átt góða helgi :)Veit að það er mikið að gera hjá þér, þú ert ótrúlega dugleg að skella þér í skólann líka, átt eftir að taka það með trompi :)
    cya skvíz

     
  • At 10/10/06 15:14, Anonymous Nafnlaus said…

    Æji takk Helen mín ég vona það:)
    Þú átt líka hrós skilið, ert sú eina sem kommentar hjá mér...finnst þetta nú frekar hallærislegt sko...hjá hinum þ.e.a.s.
    :)

     
  • At 10/10/06 15:56, Anonymous Nafnlaus said…

    jaháts, bara argasti dónaskapur!! Eins og að fara í heimsókn til fólks og heilsa ekki!! :o) hahaha... eða svona næstum :p

     
  • At 10/10/06 20:19, Anonymous Nafnlaus said…

    Já svona næstum því hahahaha:)

     
  • At 11/10/06 00:45, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kommenta nú líka hér, allavega svona stundum! Ég kannast vel við þetta tímaleysi, hvert fer hann eiginlega? En já amma er sko snilli, fór hún ein eða? fóru steina og þau ekki? æji þarf að fara að hringja í hana og fá ferðasöguna!
    FARÐU SVO AÐ LÆRA OG HÆTTU AÐ HANGA Á NETINU!!!!

     
  • At 11/10/06 08:26, Anonymous Nafnlaus said…

    Yes mam:)Steina og Hallbert fóru með henni líka, já Sædís þú kommentar alveg stundum líka, færð prik fyrir það:)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter