Oddny bloggar

25 október 2006

Í kjólinn fyrir jólin...

Jæja þá á að fara að taka sig á!!! Þetta gengur bara ekki lengur ástandið á manni, Jónmundur er byrjaður í ræktinni af fullum krafti...mér finnst ég reyndar ekki koma því á dagskránna að fara í ræktina en ætla út að labba og svona í staðinn...hef bara nóg með skólann. En nú er bara að sjá hvort maður komist í kjólinn fyrir jólin. Það er samt hrikalega erfitt að koma sér af stað en við skötuhjúin erum jú búin að vera á leiðinni að taka okkur á í maaaaarga mánuði! Ég ætla að byrja á Myoplex light á morgun, einhverjar í vinnunni verða nú ánægðar með mig:) Nú er bara að standa sig!!!

10 Comments:

  • At 25/10/06 23:19, Anonymous Nafnlaus said…

    hver andsk. er myo...? eitthvað?

     
  • At 26/10/06 08:29, Blogger Oddny Inga said…

    Þetta er svona megrunardót eitthvað...virkar á stelpurnar í vinnunni, þá hlýtur það að virka á mig líka:) Gaman að þú skyldir kvitta frænka:)

     
  • At 26/10/06 08:47, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég á einmitt vinkonu sem heitir Sædís, var að spá WTF! hún væri að kvitta hér! haha hvort þið þekktust :o)
    Líst vel á þig stelpa! Farðu í Hreysti í dag og keyptu myo.....! eitthvað :) og skálaðu með mér og Rakel í kaffinu ;)
    ......það verður ekki langt í að við sjáumst í ræktinni mega sprækar kl 06:00 í c.a -5° frosti úti :o) Bara hressandi.....!!

     
  • At 26/10/06 08:58, Anonymous Nafnlaus said…

    jeij! gaman gaman, þú verður að kaupa fyrir kaffi:-) skál!

     
  • At 26/10/06 09:27, Blogger Oddny Inga said…

    Nei ég á þessa Sædísi hehe:) Ég skal sko skála með ykkur í kaffinu í dag...þið verðið líka að kenna mér að blanda þetta myo...eitthvað:)

     
  • At 26/10/06 11:21, Anonymous Nafnlaus said…

    Iss piss Myoplex ruslkex.. (veit að það er ekki kex en það rímaði sko í endann :D) Miklu betra að fá sér Herbalifesheik. (+ það að þá styrkiru mig en ekki eitthvað fyrirtæki úti í bæ :)
    Kemst pottþétt í kjóllinn fyrir jólin með því.
    Drífa

     
  • At 26/10/06 13:13, Blogger Helga Björg said…

    Já þetta er allt spurning um að koma sér af stað! :)
    Stundum svolítið erfitt bara... hehe...

     
  • At 26/10/06 16:52, Anonymous Nafnlaus said…

    hehehe Drífa...ég er líka skráð hjá Herbalife...fengi mér bara sjálf afsláttinn þar ef ég vildi það...nenni ekki þessu töfluáti sem fylgir því:)
    Helga...vertu með okkur í Myo...verðum svaðalegar skvísur áður en við vitum af:)

     
  • At 27/10/06 14:52, Anonymous Nafnlaus said…

    ODDNÝ!! ODDNÝ!!! ODDNÝ!!!
    Það er nú ekki eins og þú sért að springa úr spiki!!!! Láttu þér duga að fara út að labba eða í ræktina, slepptu þessu megrunarbulli!!!! OG HÆTTU AÐ REYKJA ;o)
    kveðja Íris

     
  • At 29/10/06 15:44, Anonymous Nafnlaus said…

    jámm jámm... í kjólinn fyrir jólin... ég ætla í kjólinn fyrir jólin.... jólin 2009 í síðasta lagi ;)

    þú ert nú bara *Frusss* ekki í lagi...! Ekkert að þér, og smá ástarhöldur drepa engann... sína frekar vott um heilbrigði :D

    Knús og klemms
    Sys

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter