Oddny bloggar

01 janúar 2008

Gamlárskvöld

GLEÐILEGT NÝTT ÁR 2008
Við vorum svo lukkuleg að okkur var boðið í mat til Þráins, Önnu og stelpnanna.
Við vorum mætt til þeirra um sjöleytið, strákarnir kláruðu að græja matinn á meðan við Anna fengum okkur ljúffengan Mojito!
Svo var sest til borð og gjörsamlega borðað yfir sig, við fengum kalkún og tilheyrandi sem var alveg sjúklega gott.
Eitthvað var sprengt upp fyrir áramótaskaupið svona til þess að láta tímann líða en svo hlömmuðum við okkur öll fyrir framan sjónvarpið til þess að horfa á þennan árlega þátt sem tekst misvel til, mér fannst þetta allt í lagi en ekkert meira en það.
Rétt áður en skaupið kláraðist tókum við eftir því að mikinn reyk lagði úr húsinu fyrir neðan okkur eða um 10 metrum frá og á sömu stundu sáum við Bjögga og Láru frænku hlaupa þarna fyrir utan og kalla að það væri gas og súr inn í húsinu, strákarnir hlupu út til að kanna ástandið. Bjöggi hringdi í slökkvilið og enginn vissi hvort fólk væri inni eða ekki og var farið í að athuga það en það var mannlaust sem betur fer, við Anna myndskreyttum þetta agalega og vorum farnar að tárast því við sáum fyrir okkur börnin borin út.
Bíll fólksins sem á heima þarna lá þétt upp við húsið og var fólk hrætt um að hann yrði eldinum að bráð en eigandinn kom svo og náði að færa hann.
Slökkviliðið mætti svo á svæðið og fóru í það að vinna sína vinnu, um 1,5 tíma síðar kom grafa að rífa upp þakið svo hægt væri að slökkva eldinn endanlega.
Það rann algjörlega af okkur öllum og duttum bara úr öllu stuði en urðum svo allt í einu vör við að klukkan var miðnætti og kysstumst öll og reyndum að hressa okkur við, skelltum okkur út og skutum einhverju upp.
Jónmundur keypti þrjár kökur en skaut bara einni upp, þá bara eigum við fyrir þrettándann:)
Strákarnir púuðu ekta kúbverskan vindil sem þeim þótti voða gaman af en þeir reykja hvorugir svo þetta var hálfspaugilegt, ég var fengin til að prufa líka en þótti nú ekkert spes, gaman að þessu samt:)
Þegar klukkan var farin að ganga þrjú voru slökkviliðsbílar, sjúkrabílar ofl ennþá fyrir neðan hús og lokuðu þar með innkeyrslunni til Þráins og Önnu og við gátum því ekki keyrt heim svo við klæddum okkur vel og örkuðum af stað heim á leið, veðrið var nú ekki það besta og þegar við vorum hálfnuð þá stoppa hjón út í kanti og bjóða okkur far heim, kom svo í ljós að þetta voru nágrannar okkar sem búa fyrir aftan hús hjá okkur, yndislegt fólk:)
Ég vona að þið hafið átt yndisleg áramót, þau voru soldið sérstök hjá okkur.
Sjáumst hress á nýja árinu sem var að ganga í garð:)

Ég, Viktoría og Petrea
Jónmundur, Anna, Þráinn og Petrea 5 sekúndum áður en við sáum reykinn einmitt út um þennan glugga
Grettumynd sem Petrea tók, hún vildi endilega að við mundum gretta okkur:)
Eldurinn logar glatt!!!
Tekið heiman frá Láru
Jónmundur púar þennan kúbverska og Þráinn fylgist galvaskur með:)
Ég að prófa hehehe:)

4 Comments:

  • At 3/1/08 08:24, Blogger Helga Björg said…

    Gleðilegt nýtt árið skvísa og takk fyrir það gamla... ;)

    Fer þér vel að vera svona í ljósari kantinum! Er ekki vön að sjá þig þannig.... :)

    En ég bið þá bara að heilsa í bili! Knús á þig

     
  • At 6/1/08 15:19, Anonymous Nafnlaus said…

    Gleðilegt nýtt ár, og takk fyrir það gamla.
    Ég verð nú að segja að þú ert nú ansi mömmuleg þarna með stelpurnar 2 ;o)
    En tekur þig ekki eins vel út með vindilinn :o) (jökk!!)
    Kveðja að "ofan"
    Íris og co.

     
  • At 13/1/08 22:35, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ skvís og gleðilegt árið. Allt of langt síðan ég hef kíkt hingað, mundi engan vegin slóðina!
    Var að skoða flickr síðuna þína og ógeðslega eru myndirnar þínar flottar! Hvaða forrit notaru til að vinna myndirnar?
    kv. Sædís

     
  • At 19/1/08 09:58, Blogger Oddny Inga said…

    Hæ Sædís, gaman að þú skyldir kíkja hér við:)
    Takk takk, ég nota Picture Project, það fylgdi með vélinni, þarf að fá mér Photoshop.
    Bið að heilsa á Húsavík!

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter