HAPPY BIRTHDAY TO ME
I LOOK LIKE A MONKEY
AND I ACT LIKE ONE TOO
:):):)
Jamm þá er komið að því, hálfsextug eins og tengdó orðaði það pent hehehe
Ég er nú voðalega róleg yfir þessu og ekkert að velta aldrinum fyrir mér
Mér finnst þetta bara allt í lagi
Enda lífið rétt að byrja :)
Ég hélt upp á afmælið á föstudaginn, hélt heljarinnar partý, var með hattaþema sem var alveg ótrúlega skemmtilegt og hristi fólkið saman...
Mættu hátt í 40 manns sem færðu mér ótrúlega fallegar og veglegar gjafir
Ég á alltaf svo erfitt með að taka á móti gjöfum, fer í keng og veit ekkert hvernig ég á að vera
Takk innilega fyrir mig:)
Ég fékk:
Eva Solo karöflu, ótrúlega smart
Æðislegan kertastjaka f/6 kerti, svona rör sem hægt er að setja skreytingu í
L´occitane body lotion, sturtusápu og body skrúbb, geðveikar vörur, prófaði í morgun
Ilmkerti, 4 í pakka
Læsebriller, skærbleikar með styrkleika +3.5 hehehe
Flottan stóran glervasa
Wedding planner bók hehehe
Töffaralegar grifflur
Geggjaðan lampa
Webcameru og headset svo ég geti spjallað við pabba í úglöndum:)
AEG Saumvél sem mig hefur dreymt um síðan ég fermdist
Rosalega fallega mynd og ljóð
Silfurgaffal
20.000 kr gjafabréf hjá Icelandair
10.000 kr gjafabréf í Kringlunni
7.500 kr gjafabréf í Smáralind
10.000 kr gjafabréf í Smáralind
8.000 kr gjafabréf í Smáralind
Rauðvínsflösku, Hvítvínsflösku, Freyðivínsflösku...
Kampavínsflösku
Koníaksflösku...hún var samt eiginlega handa Jónmundi :)
Rósir
Svo var að bætast við rétt í þessu gjafabréf í Mecca Spa fyrir 13.000 kr frá samstarfsfólkinu
Alveg á ég eftir að taka mér dag og njóta þess í botn:)
Þröstur og Danni voru með mörg og skemmtileg skemmtiatriði, héldu alveg stuðinu gangandi!
Ótrúlega skemmilegir strákar:)
Langflestir komu með hatta og þegar leið á seinnipart kvölds þá kusu allir hver væri með flottasta hattinn.
Það voru kúrekahattar, tveir mexíkóhattar, einn með belju, tveir ítalskir mafíuósar, rauð blikkandi horn, alpahúfa, ekta slökkvistjórahúfa frá Þýskalandi, pæju og gæja hattar, rebba og kanínu eyru, tveir hjálmar, einn setti meira að segja servíettu á hausinn þar sem hann "gleymdi" hattinum heima;) það vantaði ekki hugmyndaflugið í mannskapinn.
Danni vann en hann var með beljuna á hausnum, hann var mjöööög montinn að hafa unnið Þröst sem var lítill mexíkani með som som brero.
Í verðlaun fékk Danni páskaegg, alkaseltzer, 3 afréttara, gos, nammi og poka til að setja klaka í sem maður leggur svo við höfuðið þegar maður er með hausverk og eitthvað fleira.
En partýið var alveg geggjað, ég hef ekki skemmt mér svona vel í mörg ár... :)
Ég er alveg í skýjunum með þetta :)
Á sunnudaginn vorum við svo með kaffi fyrir fjölskylduna sem var gaman líka
Við vorum með gesti frá kl hálf fjögur til tíu bara að spjalla og hafa gaman
Takk ALLIR fyrir ógleymanlegt og frábært afmæli
Þrítugsafmælinu mínu á ég eftir að muna til síðasta dags
GEÐVEIKT :)
