Oddny bloggar

29 september 2006

Úff púff og pelamál

Eitthvað verið að kvarta yfir því að maður bloggi ekki...
Mikið búið að vera um að vera...skólinn kominn á FULLT skrið og ég hef barasta ekki undan í heimalærdómi, vinnu og húsmæðrastörfum!
Svo vorum við NÆSTUM búin að kaupa íbúð um daginn og allt nokkuð klárt, búið að lofa okkur íbúðinni og parketi með og við alveg að deyja úr spenningi, svo datt verktakanum það snjallræði í hug að hækka íbúðina sí svona um 1,2 milljónir og rukka okkur 500 þúsund fyrir parketið...
frekar skítt svo við afþökkuðum pent fyrir og erum alveg að gleyma íbúðinni!!!
Seldum bílinn líka um daginn og fengum Alfa Romeo "99 árgerð uppí sem er nánast alveg eins rauður og sportlegur og ógeðslega flottur vægast sagt svo maður er allavega sáttur við það.
Brjálað að gera í vinnunni eins og alltaf.
Við erum að fara á tónleikana á morgun með Magna og Dilönu og get ég varla beðið, er allavega ótrúlega spennt, Gulla og Bóas ætla að koma með okkur.
Við Binna ætlum að rifja upp gamalt kojufyllerí í kvöld, þegar gítarstrengir voru slitnir, sungið í karókí og mikið hlegið, ætlum að reyna að endurupplifa þetta skemmtilega kvöld í kvöld:)
See ya...

17 september 2006

Oy mate!

I don't bloody Adam and Eve it!
Aint seen you in donkeys!
Lend us a lady mate!
He´s always telling porkies!
Get off your queen mum!
Cockney enska er svo skemmtileg og fyndin...hver sá sem getur þýtt þetta er cockney fær!!!
Þegar ég bjó í London þá lærði ég cockney ensku, og skyldi varla stakt orð þegar ég fór fyrst út þótt ég taldi mig vera sleipa...en svo kom þetta smátt og smátt.
Skólinn er byrjaður á fullu og er ég í Stæ, Ísl og Ens, ég bjóst við að fljúga í gegnum enskuna en held að raunin sé önnur...hef enga svaðalega reynslu í viðskiptaensku þó að hreimurinn sé fínn að þá er orðaforðinn ekki upp á marga fiska og er ég búin að liggja sveitt yfir heimalærdóminum! Mér líst samt mjög vel á námið og kennarana og held ég eigi spennandi vetur í vændum:)
Helgin var ansi róleg hjá okkur og höfum við gert lítið annað en slaka á miðað við hamagang síðustu vikna...Bóas hringdi í okkur í gær og vildi endilega sýna okkur íbúð á völlunum í Hafnarfirði, við rukum náttla af stað og íbúðin er æði...kannski ekki á besta stað en samt eitthvað svo mátulega stór og vel skipulögð og allt en við kíktum nú bara svona í ganni...erum ekkert að fara að kaupa hana.
Guðmundur mágur minn og co fengu sér lítinn stelpuhvolp í gær og guð minn góður hvað hún er sæt og góð, var að vísu ofsaleg bæld eitthvað fyrstu klukkutímana en lagaðist svo...við höldum að það hafi verið farið illa með hana greyið...hún datt bara niður og vældi þegar átti að setja á hana keðjuól en ekkert mál þegar hún fékk leðuról...greyið litla...var líka ógeðslega skítug þegar hann sótti hana en Guðmundur þreif hana og er hún öll að lifna við, ég væri alveg til í að eiga hund ef maður hefði húsnæðið fyrir hann.
Cheers mate!

11 september 2006

Back to school

Skólinn er að byrja hjá mér í dag...og er ég eins og lítill krakki...get ekki beðið en samt soldið stressuð...hlakka samt svo til...
Óskið mér góðs gengis:)
9/11 í dag...hvar voruð þið þegar þið heyrðuð af árásinni á Tvíburaturnana???

07 september 2006

Magni Magni Magni

Ég var með hnút í maganum, hjartað sló svo hratt og ég var farin að svitna þegar átti að fara að segja hver af strákunum væri í neðstu þremur...svo sagði Brooke Magni og ég get svo svarið fyrir það að ég var að fara að grenja þar til hún sagði honum að setjast...þá horfðum við Jónmundur á hvort annað alveg ótrúlega hissa og ánægð...stukkum á fætur og fögnuðum brjálað:) Hann er Gulldrengur hann Magni, ótrúleg hetja...ég hef aldrei verið svona spennt yfir velgengni íslendings...bara áfram Magni!
Ég er í fríi eftir hádegi í dag og ég er að fara að koma mér af stað að kaupa skólabækurnir, skólinn er jú að byrja á mánudaginn...ég er alveg hrikalega stressuð eitthvað yfir þessu en samt svo spennt og ánægð með að hafa látið verða af þessu en samt svo hrædd um að klúðra málunum en samt svo ákveðin í að standa mig arrrghhh...ég er bara pínu dramadrottning:)
Svo kemur Róbert litla rassgat á morgun og ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt öll saman, alltaf gaman þegar hann kemur litli kallinn:)
Jæja ég er farin að erindast...

01 september 2006

Veislueldhúsið heima...

Jú jú þeir eru að koma sér fyrir hérna Jónmundur og Danni...nú á að fara að undirbúa enn eina veisluna, þeir eru svo duglegir strákarnir. Svo "stóra" eldhúsið mitt verður undirlagt eftir augnablik, það er bara notalegt að hafa þá svona heima að gera þetta. Svo eigum við konurnar Elín og ég að þjóna...hmm hmm, jaaaaa fyrst ég komst klakklaust í gegnum Efta fundinn á Höfn í sumar að þjóna Prinsinum og prinsessunni af Lichtenstein og utanríkisráðherrum Sviss, Noregs og fleirum þá hlýt ég að komast einhvern vegin í gegnum þetta...vonandi allavega:)
Annars ætla ég bara að slappa af í kvöld enda þvælist maður bara fyrir fagmönnunum sko:)
Svo á Sunnudaginn ætlar Hákon hinn góði að setja upp fartölvuna fyrir okkur, var e-h slappur í gær kallinn svo ég hlakka mikið til þess að fá hana í gang, ekki það að hún kemst alveg í gang það er bara ekkert inná henni hehehe...
Ég óska ykkur bara góðrar helgar...
Ta Ta for now...
 
Counters
Site Counter