Íbúðin er farin
Já eins og titillinn segir til um að þá erum við búin að selja íbúðina okkar, hún fór í síðustu viku og er okkur hjúum mikið létt þó við hefðum gjarnan viljað eiga hana. Leigumarkaðurinn er bara svo mikið happdrætti og vorum við ekki til í að treysta á að fá góða leigjendur þannig að þetta er bara mjög gott mál!
Jólaandinn er að detta á mig hérna fyrir austan og gerði ég mér lítið fyrir og spilaði jólalög í gær og bakaði lagtertu mínum heittelskaða til mikillar ánægju:)
Já ég er farin að hlakka alveg ofsalega til jólanna enda mikið jólabarn, ég þarf að hemja mig í að halda skreytingunum ofan í kassa en bíð þess í ofvæni að taka það upp og skreyta húsið greinum grænum falalalala falalala!
Róbert kom í fyrsta skipti um daginn og var í tæpa viku hjá okkur, það var rosa gaman hjá okkur og var hann ekki lengi að eignast vini hér. Hann fór líka í fyrsta skipti í flugvél og fannst honum það alveg ótrúlega skemmtilegt:) Hlökkum bara til þess að hann komi aftur.
Jónmundur fór í bæinn í síðustu viku og sótti Róbert í skólann og var með honum þann daginn, Róbert hringdi og tilkynnti mér að það væri sko strákadagur hjá þeim feðgum og var hann ótrúlega montinn með það litli kallinn:)
Ef þú lest þetta blogg þá máttu gjarnan kvitta fyrir komunni, ég nenni ekkert að blogga ef enginn er að lesa:)
Bestu "jóla" kveðjur úr dalnum!
