Oddny bloggar

30 október 2006

Helgin

Þuríður og Kristín María
Costra - Góða ferð
, Rokkarar!!!

Eimuvision var bara gaman eða allt þar til úrslitin voru kynnt...við sem sagt unnum ekkert...og vorum hundfúlar hreint út sagt, við létum Jenna dómara heyra það óspart en honum fannst við bara fyndnar og hló að okkur! En það var samt mikið fjör og gaman:) Bað svo Jónmund um að koma að sækja mig um 11 leytið en þá var ég alveg búin enda búin að vera að síðan um 4. Hann fékk alveg að heyra hvað ég var fúl og ég ætlaði ekki að geta sofnað því ég var svo tapsár en það gekk svo fyrir rest hahaha:)
Laugardagurinn var bara fínn hjá okkur, ég fór og tók viðtal við ömmu (íslenskuverkefni) og það var mjög fróðlegt get ég sagt ykkur og bara gaman:) Svo fórum við til Guðmundar og Önnu og pössuðum fyrir þau gríslingana svo þau gætu skroppið í bíó.
Við sváfum svo til kl 12:30 í gær sem vara agalega gott, fórum svo að þrífa, ég að læra og svo komu Binna og Axel í heimsókn með ormana sína. Höfðum það svo bara kósý í gærkvöldi, leigðum Da Vinci Code sem er geðveik! En mikið hrikalega var erfitt að vakna í morgun, hefði alveg getað sofið mikið lengur.
Við erum búin að setja íbúðina á sölu, kom eitthvað par á föstudaginn og einhver ætlar að koma í kvöld líka jibbýkóla:)
Set inn myndir frá Eimuvision fljótlega:)

6 Comments:

  • At 30/10/06 14:18, Anonymous Nafnlaus said…

    Mig langar einmitt að sjá Da Vinci Code en hef ekki alveg lagt í hana....
    Þið áttuð sko miklu meira skilið að vinna heldur en liðið sem vann! jeminn.. það var ekkert flott....
    Förum að vinna núna :P

     
  • At 30/10/06 14:37, Blogger Helga Björg said…

    Vá hvað ég hefði viljað vera þarna og fylgjast með... af lýsingunum að dæma hljótið þið að hafa verið mjög fyndnar svona rétt eftir úrslitin!!! :) :)
    Þið eruð bara snillingar

     
  • At 30/10/06 15:37, Anonymous Nafnlaus said…

    ohh hvað ég hefði alveg verið til í að sjá ykkur á Eimuvision og ég skil þig vel að vera fúl yfir að hafa ekki unnið neitt :-)

     
  • At 30/10/06 15:51, Blogger Oddny Inga said…

    Jámm ég var mjög fúl sko vægast sagt, gleymdi að setja það inn í söguna að eftir keppnina þá strunsuðum við á sviðið og tókum lagið aftur "spank me bunny one more time" og einhver ónefnd gólaði í míkrófóninn "við erum fúlar...fúlar...fúlar!!!" hehehe en þetta var bara fyndið:)Við áttum samt alveg skilið að vinna!

     
  • At 1/11/06 12:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Geggjaðar myndir :) sérstaklega rokkara myndina af ykkur hehe. Hefði nú alveg viljað sjá ykkur á sviðinu
    Kv Ásdís

     
  • At 1/11/06 12:37, Anonymous Nafnlaus said…

    Ásdís: Þú verður bara að kíkja í heimsókn og sjá video-in ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter