Oddny bloggar

18 desember 2007

Óboðinn næturgestur

Á sunnudagskvöld vorum við hjúin alveg dauðþreytt eftir amstur helgarinnar, við fórum í rúmið og gátum engan vegin sofnað, ég kveikti á sjónvarpinu og við horfðum til að verða 1 um nóttina. Svo reyndum við að sofna...ekkert gekk og kl 1:30 þá heyrði ég að einhver var frammi, ég heyrði einhvern á vappinu og eitthvað datt og svo heyrði ég eitthvað "klikk" eins og einhver væri að kveikja og slökkva á ljósum...ég pikka í Jónmund og segi honum að það sé einhver inn í húsinu, hann stökk á fætur og ég á eftir...við örkuðum um allt húsið og meira að segja upp á háaloft en fundum engan svo við lokuðum öllum hurðum og fórum aftur upp í rúm...og ennþá gátum við ekki sofnað þó dauðþreytt værum!
Kl 3:30 erum við ennþá vakandi og þá heyri ég mjálm...andskotinn sögðum við bæði sem hvorugt erum þekkt fyrir mikla velvild í garð katta...okkur finnst kettir vera ógeðslegir!!!
Við örkum af stað og leitum og leitum...inn í öllum herbergjum...bak við sófa...bak við gardínur...inn í bílskúr og upp á háalofti en ekkert fundum! Þegar þarna er komið við sögu erum við orðin illa rauðeygð af þreytu og ansi pirruð...ekki besta formúlan til þess að sofna en við dottuðum þarna einhvern tíman um 4 leytið.
Við vöknum um 7, vorum bæði að fara í vinnuna þegar helvítið byrjar að mjálma aftur, ég mjálma á móti og alltaf svaraði kötturinn mér svo við gengum á hljóðið...haldiði að helvítið hafi ekki verið upp á háalofti allan tímann og þorði ekki niður, ég fer upp í fússi og ætla að ná honum en nei nei þá tekur minn upp á því að fela sig lengst inn í horni á bakvið dekk og kassa og töskur!!!
Nú var Jónmundi nóg boðið og hann kom stormandi upp á loft líka og náði hann að fæla kvikindið niður stigann!
Kötturinn fór beint inn í þvottahús og upp í glugga þar en glugginn var lokaður svo hann komst ekki út...við vorum bæði orðin sótsvört í framan og kötturinn skyldi út!!! Mér datt það snjallræði í hug að grípa í hnakkadrambinn á honum og grýta honum út svo hann skyldi muna það að hingað sé hann ekki velkominn, ég næ í hnakkann en sleppi um leið því kötturinn hvæsti svoleiðis á mig og var klár með klærnar...hann minnti á ROTTU!!! Ég öskraði af hræðslu og hljóp inn í bílskúr og Jónmundur gerði sig kláran í næstu lotu...hann náði að ýta kvikindinu úr glugganum og þar með hljóp hann út!!!
Annars er það að frétta að eldhúsið í álverið opnaði í dag og var minn maður ásamt Þránni og Guðna að vinna til að verða 1 í gærkvöldi og var farinn út rúmlega 5 í morgun!!! Hádegið gekk samt að óskum þó færri hefðu mætt en þeim var sagt svo þeir sitja uppi með hellings afgang!
Ég er búin með mína aðlögun í skólanum og er komin í jólafrí:)

6 Comments:

  • At 19/12/07 12:26, Anonymous Nafnlaus said…

    HAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHAHA
    Þetta hefur nú ekki verið skemmtileg lífsreynsla en guð hvað ég sé ykkur fyrir mér á loftinu reynandi að reka kattarrófuna út LOL :D

     
  • At 19/12/07 15:28, Anonymous Nafnlaus said…

    Æi þessir kettir eru ekki skemmtilegir svona óboðnir í heimsókn!! En gott að ykkur tókst að koma honum út.
    Kv. Drífa

     
  • At 19/12/07 15:39, Blogger Helga Björg said…

    Vá hvað ég sé ykkur fyrir mér... hehe!! :) Þið hafið verið alveg fyndin...

     
  • At 19/12/07 23:22, Anonymous Nafnlaus said…

    Ekki dæma alla ketti eftir einum ;o) eins með mannfólkið hehehe
    En annars er ég nú sammála, ég vil ekki fá annara manna ketti inn til mín og hef minn þess vegna ALLTAF lokaðan inni á næturnar. Hann er líka ljúfur og góður :o)
    Besti köttur í heimi hehehe.
    Vissi ekki að þið væruð katta"hatarar" :-O
    En velkomin í kaffi, kisi tekur vel á móti þér hehehe
    Kveðja Íris
    P.S ég hefði viljað vera fluga á vegg hjá ykkur hahaha

     
  • At 21/12/07 23:24, Anonymous Nafnlaus said…

    hahahaha oh hvað ég hefði verið til í að sjá þetta :-)

     
  • At 11/1/08 00:50, Anonymous Nafnlaus said…

    óój ég meindi drepast úr hræðslu hefði ég verið þarna. haha en hvernig gengur í sveitinni ? :p

    Kv Bjarndís litla systir :P

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter