30 apríl 2007
29 apríl 2007
17 apríl 2007
Prófadjöfullinn...
Jæja þá er ég búin að fá linsuna mína og get ég varla beðið eftir að prófin séu búin svo ég geti farið að leika með myndavélina mína!!!
Annars er það að frétta að ég er búin að vera að læra til miðnættis í rúma viku, alltaf eftir vinnu og svo um helgina frá 9 á morgnana...Stærðfræðipróf í dag og íslenska á morgun en þá er ég líka búin í prófum!!!
Svo ætlum við bekkjarfélagarnir að skella í okkur einum eða tveimur köldum á morgun eftir prófið...ég hugsa að ég þurfi ekki nema 1/2 og þá er ég góð hehehe:)
Frí á fimmtudaginn og ég ætla að taka mér frí líka á föstudaginn og fá langa helgi.
Róbert litli kemur á föstudaginn og er ég þar með komin með fínt módel í myndatöku:)
Ég er verulega stressuð fyrir stærðfræðiprófið í dag!!!
Allt of mikið efni og lítill tími til að æfa sig!!!
Allir að krossa fingur fyrir mig:)
10 apríl 2007
NIKON D80
Mikið var nú páskafríið notalegt. Við fórum í eina fermingu á fimmtudaginn og svo var ég að læra hálfan daginn á föstudag og til 14:30 á mánudag en annars var mikið um letilíf í kotinu okkar.
Jónmundur kom mér á óvart á fimmtudaginn og færði mér afmælisgjöf sem er drauma drauma myndavélin mín:) Þessi elska er alveg ótrúlegur, ég átti ekki til orð annað en "ERTU BRJÁLAÐUR" hehehe... En hann er yndislegur alveg hreint:) Ég trúi því stundum ekki hvað ég er heppin:)
Mig hefur dreymt um eldri típuna mjöööööög lengi en hann gaf mér nýju típuna sem heitir NIKON D80 alveg geðveik vél:)
Linsan er að vísu ennþá í Ameríkunni en kemur á mánudaginn og ég hlakka svo til að fara að smella nokkrum myndum;) Hún er líka stærri en þessi á myndinni...klikkuð linsa!!!
Svo á ég að vísu þrjár linsur sem eru manual og held að þær eigi að geta gengið við hana en kann bara ekki að stilla vélina á manual...hmmmm :) Þarf eitthvað að skoða það betur...
Svona lítur gripurinn út...

Annars er það að frétta að prófin eru framundan og lærdómur alla daga núna þar til á miðvikudagskvöld í næstu viku en þá er síðasta prófið og þá ætla ég sko að taka fullllllt af myndum á nýju vélina mína:)