Úff púff og pelamál
Eitthvað verið að kvarta yfir því að maður bloggi ekki...
Mikið búið að vera um að vera...skólinn kominn á FULLT skrið og ég hef barasta ekki undan í heimalærdómi, vinnu og húsmæðrastörfum!
Svo vorum við NÆSTUM búin að kaupa íbúð um daginn og allt nokkuð klárt, búið að lofa okkur íbúðinni og parketi með og við alveg að deyja úr spenningi, svo datt verktakanum það snjallræði í hug að hækka íbúðina sí svona um 1,2 milljónir og rukka okkur 500 þúsund fyrir parketið...
frekar skítt svo við afþökkuðum pent fyrir og erum alveg að gleyma íbúðinni!!!
Seldum bílinn líka um daginn og fengum Alfa Romeo "99 árgerð uppí sem er nánast alveg eins rauður og sportlegur og ógeðslega flottur vægast sagt svo maður er allavega sáttur við það.
Brjálað að gera í vinnunni eins og alltaf.
Við erum að fara á tónleikana á morgun með Magna og Dilönu og get ég varla beðið, er allavega ótrúlega spennt, Gulla og Bóas ætla að koma með okkur.
Við Binna ætlum að rifja upp gamalt kojufyllerí í kvöld, þegar gítarstrengir voru slitnir, sungið í karókí og mikið hlegið, ætlum að reyna að endurupplifa þetta skemmtilega kvöld í kvöld:)
See ya...

8 Comments:
At 29/9/06 13:08,
Nafnlaus said…
jeij gaman að þú skyldir blogga :-)Góða skemmtun á tónleikunum.
At 29/9/06 15:09,
Nafnlaus said…
Hey þú felur þig inni á klósti og svo hittumst við á STÓRdansleiknum um kvöldið :o)
At 29/9/06 15:36,
Oddny Inga said…
Takk Rakel...
Hey já Helen það er snilldaráætlun hjá þér...við erum að vísu 4, skyldu þeir nokkuð taka eftir okkur...við stöndum náttla bara upp á klósettunum múhahahaah:)
At 30/9/06 20:36,
Nafnlaus said…
Hallú skvís... ert nú líklega á þessu tryllt skemmtilegu tónleikum núna!!! :)
Fór í gærkvöldi og á ekki til orð til að lýsa því hvað þetta var geggjað!
Vonandi skemmtir þú þér jafnvel og ég ;)
Sjáumst vonandi hressar og kátar á mánudaginn... minns er heima í mömmukoti með eyrnabólgu, smá kvef og hita!!! FRÁBÆRT ALVEG HREINT!!
En þá er það bara íbúfen og rólegheit svo maður geti mætt í vinnuna....
LATER ;)
At 1/10/06 13:36,
Oddny Inga said…
Ójá...tónleikarnir voru geðveikir VÆGAST sagt!!! geðveikt stuð:)ég tók video og myndir...
Þú verður að láta þér batna stúlka, drekka Jagermeister eða eitthvað hehehe:)

At 3/10/06 11:22,
Nafnlaus said…
hey hvernig væri að setja inn tónleikasöguna:-)
At 4/10/06 10:28,
Nafnlaus said…
mér finnst þú ekkert dugleg að blogga híhí :o)
Skrifa ummæli
<< Home