Oddny bloggar

22 ágúst 2006

Alein og yfirgefin


-Amma og frænka-
Jónmundur fór í söluferð á Austfirðina og pabbi ákvað að skella sér bara með, ég er búin að heyra í þeim tvisvar í dag og virðist sem þeir hafi bara gaman af, voru að skríða inn á Egilsstaði fyrir um 2 tímum síðan. Þeir hittu Öldu og Magga á leiðinni og fóru í kaffi og með því í húsbílnum þeirra...aldeilis heppnir.
Helgin var viðburðarrík...afmæli hjá ömmu á Föstudaginn, heldur betur fjör þar, maður hitti eitthvað af ættingjum sem maður hefur ekki séð lengi, og öll nýjustu litlu krílin KLING!!! algjörar dúllur öll sömul.
Við pabbi og Veigar kíktum á alþjóðarallið, eða
horfðum á þá á síðustu brautinni. Svo fórum við pabbi og tókum ömmu, Öldu og Magga með okkur að horfa á flugeldasýninguna á menningarnótt, alltaf jafn fallegt að horfa á sprengjurnar.
Pabbi og Veigar skelltu sér í golf með öðrum ættingjum á Sunnudaginn og fórum við Jónmundur að kíkja á þá, við urðum svona líka veik og held við verðum bara að fara að fá að prófa. Eftir golfið var ákveðið að öll fjölskyldan sem enn var í bænum skyldi snæða saman hjá Steinu frænku, maturinn var eldaður af Jónmundi og Rögga heima hjá okkur og svo bara keyrðum við hann yfir til Steinu, býr nú ekki nema hinum megin við Reykjanesbrautina, þar vorum við 20 manns að snæðingi.
Nú styttist óðum í að skólinn byrji, ég er rosalega spennt en líka kvíðin...kannski ræð ég ekkert við þetta en það kemur bara í ljós.
Svili minn góður er búinn að redda okkur 4 mánaða helvíti öfluga fartölvu á gjafaprís og fáum við hana á Föstudaginn, ég er eins og lítill krakki og get varla beðið, borðtalvan okkar er svo hæg og leiðinleg stundum.
Ég er bara ein og yfirgefin í kotinu...ætli maður skelli ekki bara í sig einum köldum!!!
Skál!!!

6 Comments:

  • At 24/8/06 17:49, Anonymous Nafnlaus said…

    Æðislegt að heyra hvað það er búið að vera gaman hjá ykkur :)
    vildi að ég hefði verið með....

    Sakna ykkar BARA mikið!

    knús og klemms...
    sys

     
  • At 25/8/06 01:33, Anonymous Nafnlaus said…

    ójá það var alltaf svo spennó að byrja í skólanum, en núna er ég ekkert smá fegin að því sé lokið, allavega í bili, enda farin að sinna MIKLU meira spennandi hlutverki, þú skilur (vonandi fljótlega hvað ég á við, hehe)

     
  • At 25/8/06 08:08, Blogger Oddny Inga said…

    já söknum þín líka Habba, búið að vera rosa gott og gaman hjá okkur:)
    Sædís..."fljótlega" ;)er enn að æfa:)

     
  • At 25/8/06 08:33, Blogger Helga Björg said…

    Þú átt eftir að standa þig eins og hetja í skólanum! :) Tekur smá tíma að venjast því að vera farin að læra aftur en svo kemur það!
    Finnst bara frábært að þú hafi skellt þér í þetta! ;)

     
  • At 25/8/06 10:50, Blogger Oddny Inga said…

    Já takk fyrir það:) ég er alveg í skýjunum með þessa ákvörðun mína:)

     
  • At 26/8/06 10:06, Anonymous Nafnlaus said…

    bíddu nú hæg!!
    Hvaða skóla ert að fara í ?
    Maður fréttir aldrei neitt ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter