Veislueldhúsið heima...
Jú jú þeir eru að koma sér fyrir hérna Jónmundur og Danni...nú á að fara að undirbúa enn eina veisluna, þeir eru svo duglegir strákarnir. Svo "stóra" eldhúsið mitt verður undirlagt eftir augnablik, það er bara notalegt að hafa þá svona heima að gera þetta. Svo eigum við konurnar Elín og ég að þjóna...hmm hmm, jaaaaa fyrst ég komst klakklaust í gegnum Efta fundinn á Höfn í sumar að þjóna Prinsinum og prinsessunni af Lichtenstein og utanríkisráðherrum Sviss, Noregs og fleirum þá hlýt ég að komast einhvern vegin í gegnum þetta...vonandi allavega:)
Annars ætla ég bara að slappa af í kvöld enda þvælist maður bara fyrir fagmönnunum sko:)
Svo á Sunnudaginn ætlar Hákon hinn góði að setja upp fartölvuna fyrir okkur, var e-h slappur í gær kallinn svo ég hlakka mikið til þess að fá hana í gang, ekki það að hún kemst alveg í gang það er bara ekkert inná henni hehehe...
Ég óska ykkur bara góðrar helgar...
Ta Ta for now...

0 Comments:
Skrifa ummæli
<< Home