Oddny bloggar

26 ágúst 2006

Pabbapizza

-Pabbi að hnoða í pizzur-
Í gær var pabbapizzupartý, pabbi bakar heimsins bestu pizzur og hnoðaði í nokkrar í gær, ohhh svo góðar, fékk uppskriftina loksins og aldrei að vita nema maður bjóði bráðum í pizzu:)
En svo fóru pabbi og Veigar til Danmerkur í morgun, maður barðist við tárin, segi nú ekki að það hafi alveg gengið því nokkur féllu á leiðinni heim og þegar heim var komið:( En takk fyrir komuna, það var svo gaman að hafa ykkur og þó að Róbert hafi vitað að þið færuð heim meðan hann svæfi þá skyldi hann ekkert hvar þið voruð í morgun og af hverju þið væruð farnir:)
Fórum í afmæli til Unu í kræsingar og góðgæti...ekki grennist maður í dag!!!
Ég er að fara í Háskólann í Reykjavík í undirbúningsnám fyrir HMV og er ótrúlega spennt yfir því, byrja 11. september. Undirbúningsnámið er einmitt fyrir svona slúbberta eins og mig sem ekki hafa lokið stúdentsprófi. HMV er Háskóli með vinnu. Ætla bara að byrja á því að klára þennan vetur og ákveð svo í vor hvað ég geri í framhaldinu.
Annars verð ég að segja frá smá í Austurlandsferðalagi Pabba og Jónmundar, þeir gistu á Norðfirði á Hótel Egilsbúð, þetta var víst hrikalegt og aðstaðan verri en á verbúð, ekki nóg með það að þá spurði daman í afgreiðslunni þegar þeir komu hvort þeir ætluðu NOKKUÐ að fá morgunmat, þeir náttla hálf orðlausir gubbuðu hálfpartinn út úr sér uhhh júúúú eiginlega. Svo skelltu þeir sér á barinn í einn öl, búnir að vera í smá stund þegar hún bara lokar á þá og hendir þeim þannig séð í bólið...mælum ekki með þessu "hóteli" Fengu nú samt sitt hvora brauðsneiðina í morgunmat greyin:)

3 Comments:

  • At 27/8/06 10:41, Anonymous Nafnlaus said…

    Já þær eru sko lang lang lang bestar pizzurnar hjá honum gamla :) Hann tilkynnti okkur nú líka að hann hefði fengið einhverjar gómsætar uppskriftir hjá ykkur hehe, verður spennandi að sjá hvort ég nái að lokka þær út úr honum haha :)

    Skil vel að þú hafir barist við tárin, það er alltaf og verður alltaf hörmung að segja bless við þá sem maður elskar...!

    Knús og klemms...

     
  • At 28/8/06 14:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég þori nú ekki öðru en að kvitta fyrir komunni.
    settu inn fleiri myndir :) mér finnst svo gaman að skoða þær ;)

     
  • At 28/8/06 15:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Var nú búin að heyra eitthvað af þessum pabbapizzum! ;)

    Þú heppin... ég kann sko ekki fyrir mitt litla líf að gera almennilegar pizzur!

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter