Oddny bloggar

07 september 2006

Magni Magni Magni

Ég var með hnút í maganum, hjartað sló svo hratt og ég var farin að svitna þegar átti að fara að segja hver af strákunum væri í neðstu þremur...svo sagði Brooke Magni og ég get svo svarið fyrir það að ég var að fara að grenja þar til hún sagði honum að setjast...þá horfðum við Jónmundur á hvort annað alveg ótrúlega hissa og ánægð...stukkum á fætur og fögnuðum brjálað:) Hann er Gulldrengur hann Magni, ótrúleg hetja...ég hef aldrei verið svona spennt yfir velgengni íslendings...bara áfram Magni!
Ég er í fríi eftir hádegi í dag og ég er að fara að koma mér af stað að kaupa skólabækurnir, skólinn er jú að byrja á mánudaginn...ég er alveg hrikalega stressuð eitthvað yfir þessu en samt svo spennt og ánægð með að hafa látið verða af þessu en samt svo hrædd um að klúðra málunum en samt svo ákveðin í að standa mig arrrghhh...ég er bara pínu dramadrottning:)
Svo kemur Róbert litla rassgat á morgun og ætlum við að gera eitthvað skemmtilegt öll saman, alltaf gaman þegar hann kemur litli kallinn:)
Jæja ég er farin að erindast...

2 Comments:

  • At 9/9/06 08:02, Anonymous Nafnlaus said…

    Já Magni er að standa sig frábærlega, en það fyndna er að ég hafði ekki hugmynd um í hvaða hljómsveit hann er! Las mér svo reyndar til um það á netinu, svona til að vita það! hehe
    Hafið það súper gott um helgina... hér erum við bara á fullu að pakka niður og koma hlutunum á rétt ról fyrir fluttningana! ;)

     
  • At 11/9/06 09:10, Anonymous Nafnlaus said…

    úff... næsti þáttur verður spennandi!! Eins gott að hann vinni þetta EKKI :o)
    því...ég vorkenni honum að þurfa þá að spila með þessum rugludöllum :P
    En annars held ég að Toby eða Dilana vinni.

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter