Lasarus
Skyldi maður ekki hafa náð sér í eitt stykki pest takk fyrir pent!!! Var heima í gær og leið satt best að segja mjög illa en er öll að koma til núna...ég verð samt alltaf svo eirðarlaus þegar ég verð veik, langar ekki til að liggja í rúminu en meika ekki neitt samt...Sjónvarpsdagskráin ekkert spennandi fyrir utan magnaða spennu í Nágrönnum, hef aldrei vitað aðra eins dramatík...þetta er að líkjast Bold and the beautyful!
Við fórum og náðum í kaggann upp í Heklu á Þriðjudaginn eftir vinnu og það var þetta fjandans vélarljós sem var að bögga okkur eina ferðina enn, byrjaði fyrst nokkrum dögum eftir að við keyptum bílinn í fyrrasumar og okkur var alltaf sagt að þetta væri ekki neitt nema fyrir einhverju síðan að þá var okkur sagt að þetta væri skynjari í pústinu sem þyrfti þá að skipta um ef að ljósið kæmi aftur, nema hvað að þetta var svo ekkert það þegar uppi var staðið heldur einhver ventill og rör og leiðslur eða eitthvað og átti að kosta tæpar 40.000 kr...þegar átti að borga sagði ég bara eins og er að mér fyndist hálf fúlt að þurfa að borga fullt verð og hefði fundist að það hefði átt að laga þetta þegar ljósið kom fyrst en ekki bíða fram yfir ábyrgð því þetta vandamál hefði verið frá upphafi...eftir smá spjall á kurteisu nótunum rétti maðurinn mér lykilinn og sagði að Hekla mundi borga þetta hehehe...ég var svo ánægð...mér leið eins og ég hefði unnið í lottói...en hugsið ykkur ef maður hefði ekkert sagt...þá væri ég 40.000 kr fátækari!!
en ef einhver hefur áhuga á að kaupa bílinn minn þá er hann til sölu...
Kveð að sinni...

7 Comments:
At 31/8/06 11:59,
Nafnlaus said…
Já það er eins gott að segja eitthvað þegar svona er!
Flestir hefðu bara tekið upp kortið og borgar þennan 40þús kall og verið svo í brjál skapi.. hehe.. :)
Gott hjá þér!!
At 31/8/06 16:21,
Oddny Inga said…
Ég veit, ég er ótrúlega stolt af sjálfri mér, algjör hetja sko hehehe:)
At 1/9/06 13:39,
Helga Björg said…
Juminn hvað við erum klárar að gera síðurnar fínar... :)
Alltaf að finna eitthvað nýtt!!
Sem er mjööög gott....
At 1/9/06 15:22,
Nafnlaus said…
Já við erum algjörar pæjur sko hehehe:)
At 1/9/06 19:18,
Nafnlaus said…
Noh. Bara dugnaður í minni, farin að blogga og alles :o) Það er nú flott, alltaf gaman að fylgjast með ættingjum og vinum sem maður hittir nú ekki of oft ;o)
Halltu bara áfram og vertu dugleg að koma með fréttir af þér og þínum.
Kveðja úr "sveitinni"
Íris frænka ;o)
At 1/9/06 20:14,
Nafnlaus said…
Ég hefði pottþétt borgað þetta og farið svo heim og skammað Sjonna fyrir að "láta" mig borga þetta ;)
At 1/9/06 21:10,
Oddny Inga said…
Gaman að þú skyldir finna mig Íris og takk fyrir síðast:)
Oddný...læra af frænku...ég meina nú er ég búin að vinna mér inn fyrir nýjum skóm eða eitthvað hehehe eða kannski bara uppí skólann og tölvuna haaa já kannski það frekar;)
Skrifa ummæli
<< Home