Við komum til Eskifjarðar á sunnudaginn, degi fyrir áætlun en það reddaðist nú alveg fyrir horn með góðri hjálp ættingja og vina.
Við vorum búin að stressa okkur allt of mikið fyrir þessa flutninga og það var nú bara algjör vitleysa því við vorum fljót að átta okkur á að það er virkilega gott að vera hér í firðinum fagra.
Eins og einhverjir vissu að þá ætlaði ég að fara að vinna hérna á leikskólanum sem er hér í næstu götu við mig og hlakkaði ég mikið til. En nú er ég hætt við, ástæðan er einfaldlega sú að ég get ekki sætt mig við láglaunastefnu í þessum geira, ég vissi að launin væru lág en ég vissi samt ekki að þau rétt skríða yfir lágmarkslaun! Ef ég hefði tekið vinnuna þá hefði ég verið að samþykkja þessa fáránlegu stefnu sem löngu er orðið tímabært að breyta og bæta!
Svo nú er ég bara atvinnulaus húsmóðir að skrúbba gólf og hengja út þvott í góða veðrinu hérna...jú og náttúrulega að blogga en ég hugsa að ég taki mig á í því og reyni að vera í takt við nútímann og blogga kannski aðeins oftar en ég hef gert hingað til:)
Jónmundur er á fullu í sinni vinnu, undirbúa og svona, hann er núna á námskeiði með Guðna sem er einn af kokkunum en þau fluttu viku á undan okkur og svo koma Þráinn, Anna og prinsessan um helgina næstu.
Við stefnum á að fara suður á sunnudaginn, græja það sem við náðum ekki að græja áður en við fórum og sækja Róbert en hann ætlar að koma í vetrarfríinu sínu og vera hjá okkur í sveitinni, eins gott að undirbúa herbergið hans áður en kúturinn kemur:)
Við ætlum að reyna að fara í Toys r us, við erum alveg æst í að komast í þessa búð hahaha!!!
Kveðja að austan!
Oddný og Jónmundur:)

3 Comments:
At 22/10/07 15:44,
Helga Björg said…
Hæhæ
Gaman að heyra að ykkur líkar vel! Alltaf gott að komast í smá sveitaloft... :)
En fúlt með leikskólann - alveg ömurlegt hvað þetta er illa borgað. Maður skilur allavega alveg afhverju það vantar svona fólk... :(
En ég er alveg viss um að þú finnur eitthvað meira spennandi og umfram allt betur borgað! hehe...
Knús í kotið
At 22/10/07 22:11,
Nafnlaus said…
Þú mátt alveg koma og skrúbba aðeins hjá mér ef þér leiðist að gera það heima hjá þér :)
Og ert að sjálfsögðu alltaf velkomin í heimsókn.
En vonandi færðu nú vinnu fljótlega með betri laun en þetta.
Kveðja að ofan
Drífa
At 25/10/07 14:25,
Nafnlaus said…
Takk fyrir okkur um daginn.
Gaman að kíkja á ykkur.
Og ykkur er velkomið að kíkja til okkar.
Bestu kveðjur Íris og co.
Skrifa ummæli
<< Home