Laddi 6tugur
Við fórum á Ladda 6tug með vinnufélögum mínum en það er alveg stórkostleg sýning, ég meina maðurinn er bara hrein og tær snilld. Við hlógum okkur máttlaus, okkur var illt í kinnunum og maganum af hlátri :) Hann er algjört æði með öll sín gervi, hvert öðru fyndnara!
Sigga Lund, Eiríkur Fjalar, Þórður húsvörður, Magnús gamli, Presturinn, Saxi læknir en þegar hann kom á sviðið þá hélt ég að ég mundi pissa í brækurnar...ég ætlaði ekki að jafna mig, ég grenjaði og öskraði úr hlátri en hann tók einn gestinn fyrir og það var bara kostulegt atriði!
Þetta var peninganna virði algjörlega...ég væri meira að segja alveg til í að fara aftur:)
En það voru stórir hlutir að gerast hjá okkur í dag...
Lillinn hann Róbert fullorðnaðist heilan haug...jú jú drengurinn lærði nefnilega að hjóla eftir mikil hlaup hjá okkur Jónmundi fram og til baka á bílastæðinu, grípandi drenginn og reyna að kenna honum þessa miklu tækni...við vorum alveg móð og másandi, eldrauð í framan...eiginlega blá ef satt skal segja...þetta var s.s. í gærkvöldi! Svo fórum við aftur í morgun og viti menn!!! Þá var þetta bara komið :) Og við náttúrulega búin að fara þrisvar út að hjóla í dag...eða Róbert sko, við hlaupandi sitt hvorum megin við svona bara til öryggis því hann er nú ekki búinn að ná 100% tökum á þessu en svona c.a. 90%
Svo er fyrsta barnatönninn orðin laus:)
Strákurinn er mjög montinn með þetta allt saman, ég held honum finnist hann vera orðinn svolítið fullorðinn...
Hann er líka ástfanginn!!!
Af mér :)
Ég get nú ekki annað en verið montin með það:)

4 Comments:
At 6/5/07 10:32,
Nafnlaus said…
ég búin að hamast við að kvitta við síðustu færslur en ekkert komið... uhhuuu...reyni enn.
En þetta eru bara geggjaðar myndir hjá þér. Kem til þín næst þegar við verðum á ferðinni og fæ þig til að taka fjölskyldumyndir og myndir af guttanum :)
KV. Drífa
At 6/5/07 10:41,
Nafnlaus said…
Ohh mig langar svo á Ladda... trúi vel að hann sé sprengfyndinn :)
Frábært hjá Róberti að ná tökunum að hjóla svona fljótt, ég man nú bara þegar Jón Þór var að rembast við þetta, hann var að verða vitlaus greyið af pirring, óþolinmæðin í botni þar eins og alltaf hehe!
Alexandra kunni ekki að hjóla, en svo einn daginn kom hún heim úr leikskólanum og whoopti... hjólaði eins og hún hefði aldrei gert annað! Hún tók sjálf upp á því að læra að hjóla án hjálpar og hjálpardekkja og náði tökum á því strax!
En... vonandi ferðu nú út í dag og smellir myndum í þessarri blíðu.... á meðan "aðrir" þurfa að vinna...fnussss...! :) Langar sko mikið frekar að vera úti með vélina að smella af!! :)
Knús í kotið
At 6/5/07 22:34,
Nafnlaus said…
jiii já það var sko hlegið!
Snilldar sýning.
At 31/8/07 15:50,
Nafnlaus said…
Elsa lund heitir hún ekki sigga lund hehe
Skrifa ummæli
<< Home