Oddny bloggar

03 júní 2007

Lítil frænka og frænka/frændi á leiðinni:)

Ég var að eignast litla frænku í gær, stóra og stæðilega 17,5 merkur og 53 cm
Algjört rassgat í bala:)
Til hamingju Oddný og Sjonni...vonandi sjáum við erfingjann sem allra fyrst:)
Svo er Ásta systir næst en hún var sett í gær svo maður bara bíður og bíður spenntur eftir að fá lítið kríli þar til að hnoðast í hehehe:) ohhhhh ég hlakka svo til!!!
Róbert var hjá okkur um helgina og málaði hann herbergið sitt með okkur, hann fékk að mála það blátt þrátt fyrir að ég hafi mikið reynt að fá hann til að hafa það grænt...en nei nei það kom bara ekkert annað til greina en BLÁTT hehehe:) Herbergið hans er alveg að verða klárt!
Svo styttist í afmæli þeirra feðga, Róbert 15. júní og Jónmundur 16. júní...þá verður partý hjá okkur:)
Sumarfrí eftir 2 vikur í 2 vikur og mikið verður það nú notalegt ahhhhh...ætlum í sumarbústað og hafa það huggulegt:)
Thats all!

5 Comments:

  • At 4/6/07 10:27, Anonymous Nafnlaus said…

    Og hvað ? fór að klingja í þér ? híhí

     
  • At 4/6/07 11:06, Blogger Oddny Inga said…

    Hehehe JÁDS auðvitað;)

     
  • At 4/6/07 21:39, Anonymous Nafnlaus said…

    Það klingir svo hátt að það heyrist alla leið austur.
    Þú kemur auðvitað austur í fríinu þínu að skoða allar frænkurnar og frændana... er það ekki :)
    Kv. Drífa

     
  • At 5/6/07 09:09, Blogger Unknown said…

    úúú bara kling kling ;-) Til hamingju með frænkuna

     
  • At 5/6/07 22:17, Blogger Oddny Inga said…

    Kling kling austur á land;)
    Hver veit nema maður skreppi í sólina og nái sér í smá brúnku í sumar...en ekkert planað allavega ennþá:)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter