Oddny bloggar

27 maí 2007

Ferðasagan ofl.

Flugið gekk ágætlega svona þegar við vorum komin upp í háloftin en þetta var jómfrúarferð til Gautaborgar s.s. fyrsta flugið og fengum við því kampavín og konfekt:)
Við vorum komin á hótelið um 4 leytið, fórum í sturtu og hrein föt og fórum svo í siglingu á Hebbe lille um Skerjafjörðinn, þessi sigling var í 3 tíma og var hún mjög skemmtileg. Við sáum eitt af skipum Eimskipa, við sáum nakta karlmenn sem voru að synda í sjónum en þeir voru ekki sérlega hrifnir þegar við tókum myndir af þeim hehehe:) Eftir siglinguna var rölt heim á hótel og skellt sér á barinn.
Á föstudeginum röltum við í bæinn með Bigga og Hlín og Alfreð og Evu, kíktum í búðir og svona þetta klassíska og svo um kvöldið fórum við nokkur út að borða á Basement sem er Micheline stjörnu staður en þrjár Michelin stjörnur er toppurinn á kokkamáli! Maturinn var líka mjög góður. Kíktum svo á barinn á hótelinu þar sem Stefan Gunnarsson spilaði af sinni snilligáfu líkt og öll hin kvöldin en hann er víst voða frægur píanóleikari og söngvari í Svíþjóð enda ótrúlega góður. Því næst var förinni haldið á Park Lane sem er víst eitthvað svaðalegt diskótek í Gautaborg en það var mjög gaman þrátt fyrir að okkur liði soldið eins og ellismellum þarna;) Jónmundur kynntist svía sem var ægilega hrifin af mínum og var farin að slefa yfir öxlina á Jónmundi þegar við ákváðum að stinga af:)
Á laugardag kíktum við í tívolíið Lysjeberg en það er allsvakalegt tívolí...við röltum þar um og fórum svo í bæinn að versla aðeins, enda vantaði mig föt fyrir kvöldið, æðislegt veður, 20°C og heiðskýrt, Jónmundur brann meira að segja í framan:)
Árshátíðin var haldin í Sjömagasinet sem er Michelin stjörnu staður og besti veitingastaður Gautaborgar sem staðsettur er við höfnina, geðveikur maturinn þar. Það var mikið sungið og eiginlega heldur mikið að margra mati en mjög gaman samt sem áður. Eftir árshátíðina fórum við inn á herbergi til Alfreðs og Evu og fengum okkur nokkur glös áður en haldið var á barinn en flestir voru vel í því og það var drukkið og dansað fram á nótt:)
Ferðin í heild sinni var ótrúlega skemmtileg og nauðsynlegt að skella sér í svona helgarferðir af og til, þó maður hafi nú lítið sem ekkert sofið í 4 daga þá kom maður alveg endurnærður heim í 3°C og stinningskalda með snjókomu!!! Hvað er það???

Jónmundur hjálpaði bróður sínum að helluleggja á föstudag og laugardag...ég hjálpaði smá í gær;)
Í dag skelltum við okkur í smá fjallgöngu upp á Keili, gönguferðin tók hátt í 3 tíma með smá pásum en þetta var ótrúlega gaman og fyndið hvað veðrið er alltaf aðeins betra þegar maður er komin út fyrir borgarmörkin, við fengum smá svona sumarfíling;)
Bóas kom svo með krakkana í mat í kvöld og skelltum við okkur svo í smá göngutúr og bíltúr sem endaði með ís á línuna!

Hafið þið pissað í ykkur af hlátri???
Ég prófaði það í kvöld en ég hef aldrei skilið það fyrirbæri fyrr en nú!!!

Morgundagurinn eftir í fríi:) Við ætlum að gera eitthvað ofsalega skemmtilegt þá líka! Mikið vildi ég að allar helgar væru svona langar, maður nennir miklu frekar að gera eitthvað þegar maður fær þriggja daga helgar! Vonandi verður bara sól og blíða!

Over and out!

6 Comments:

  • At 28/5/07 13:46, Anonymous Nafnlaus said…

    Whoooot? Er ég að skilja þetta síðasta rétt? Pissaðiru í þig af hlátri ????? hahahaha ég pissaði næstum í mig að lesa það! nehh djók en ég glotti :o)
    Þetta hefur greinilega verið vel heppnuð ferð!
    Ég var einmitt að láta mig dreyma í gær um tjald útilegu einhverja helgina í góðu veðri útí sveit....
    Hey eruði ekki farnar að sakna mín??? ooo ég er farin að sakna ykkar mest !
    Sjáumst :)

     
  • At 28/5/07 15:59, Anonymous Nafnlaus said…

    hahaha ég verð að heyra meira um þetta á morgun

     
  • At 29/5/07 07:57, Blogger Helga Björg said…

    Ég hef aldrei pissað í mig af hlátri, ekki svo ég muni til allavega :) hehe... Þú ert æði!!!

    En já þegar maður á langar helgar nennir maður að gera miklu meira! Allavega vorum við Gulli allsvakalega dugleg um helgina :)

    Svo er bara útilega eftir tæpar 2 vikur og kannski bara aftur eftir tæpar 3... ef veður leyfir þ.e.a.s. :)

    Orðið annsi langt, heyri í þér síðar skvísin :)

     
  • At 29/5/07 08:40, Anonymous Nafnlaus said…

    hehe mér finnst þú æði :o) Fínt að vera búin að prufa þetta, pissa í sig og svona á "efri árum" híhí

    Kv Ásdís

     
  • At 29/5/07 14:56, Anonymous Nafnlaus said…

    Gott að gaman var í ferðinni..
    uuu ég held að ég hafi aldrei pissað alveg í mig en svona næstum því.
    Kv. Drífa

     
  • At 30/5/07 09:23, Blogger Binna said…

    Djöfull og dauði að ég hafi misst af þessu. Bóas ætlaði aldrei að koma sögunni útúr sér því hann hló svo mikið í símann. Hefði gefið mikið fyrir að hafa verið á staðnum.Þarf greinilega að hugsa eitthvað fyndið til að segja þér þegar ég hitti þig næst. Þetta er á fárra færi en það er það sem gerir þig einstaka.Hehe.Hafðu það sem best og hittumst sem fyrst. Bið að heilsa Jónmundi(Jónsa).

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter