Oddny bloggar

11 maí 2007

ALWAYS COCA COLA

VATN 75% Bandaríkjamanna eru með krónískan ofþurrk. (Á sennilega við helminginn af íbúum jarðar)
Hjá 37% Bandaríkjamanna er þorstaskynjunin orðin svo slök að hún er oft túlkuð sem hungur.Jafnvel vægur ofþurrkur getur hægt á brennslukerfi líkamans um 3%.
Eitt glas af vatni nægði til að slá alveg á hungurverki seint að kvöldi hjá næstum 100% þátttakenda í könnum hjá Háskóla í Washington.
Ónóg neysla af vatni, er í FYRSTA SÆTI yfir það sem veldur þreytu yfir daginn.
Niðurstöður úr einni könnun gefa til kynna að drekki fólk 8-10 glös af vatni yfir daginn gæti það létt á bakverkjum og liðaverkjum hjá allt að 80% þeirra sem þjást af þessum verkjum.
Ef vatnið í líkamanum minnkar um aðeins 2% getur það valdið lélegu skammtímaminni, erfiðleikum með einfalda stærðfræði og skorti á einbeitingu við lestur á tölvuskjá eða annað prentmál.
Að drekka 5 glös af vatni á dag dregur um 45% úr áhættu á krabbameini í þörmum auk þess sem það getur dregið allt að 79% úr áhættu á brjóstkrabba og lækkar áhættu karlmanna á blöðruhálskrabbameini um 50%.

Viltu ekki fá þér vatnssopa???

KÓK Í mörgum bandarískum fylkjum er vegalögreglan með 10 lítra af kóki bílunum hjá sér til að þrífa blóð af vegum eftir umferðarslys.
Þú getur sett T-Bone steik í skál af kóki og hún verður horfin eftir 2 daga.
Til að hreinsa klósettið: Helltu einni dós af kók ofan í klósetið, bíddu í eina klukkustund og sturtaðu svo niður. Sýran í kókinu leysir upp bletti.
Til að fjarlægja ryðbletti af krómstuðurum: Dýfðu krumpuðum álpappír í kók og nuddaðu stuðarann.
Til að hreinsa rafgeyminn í bílnum: Helltu einni dós af kók yfir rafgeymatengslin.
Til að losa ryðgaðan bolta (skrúfu). Rennbleyttu tusku með kóki og haltu henni að boltanum í nokkrar mínútur.
Til að fjarlægja fitubletti úr fatnaði: Helltu einni dós af kók í þvottavélina bættu við þvottaefni og þvoðu eins og venjulega. Kókið leysir upp fitublettina.
Framrúðan á bílnum þínum hreinsast líka vel með kóki.
Virka efnið í kók er phosphoric acid. Ph í kók er 2.8. Það getur leyst upp nögl á ca fjórum dögum.
Til að flytja Coca-Cola sýrópið (fullan styrk) þurfa vöruflutningabifreiðar að hafa á sér viðvörunarskilti sem einungis eru notuð á bíla sem annast flutning á MJÖG ÆTANDI EFNUM.
Dreifingaraðilar Coca-Cola hafa notað gosdrykkinn í um það bil 20 ár til að hreinsa vélarnar í trukkunum hjá sér.

Langar þig enn í hressandi dós af Cola drykk?

4 Comments:

  • At 11/5/07 14:31, Anonymous Nafnlaus said…

    ég varð bara mjög fegin að finnast kók vont þegar ég las þetta :-)

     
  • At 11/5/07 16:21, Anonymous Nafnlaus said…

    En ef við drekkum kók, þá fitnum við ekki (þar sem kók leysir upp fitu), Ryðgum ekki, þar sem það hreinsar ryð og verðum ekki súr hehehe
    Nei nei, bara að velta þessu fyrir mér.
    En þá er Pepsi kannski bara betra ;o)
    PEPSI; BEST ÍSKALT :)
    eða eins og einn ungur drengur sagði eitt sinn við mig:
    pepðibeðtíðkalt (lesist hratt)
    Adios Íris

     
  • At 17/5/07 15:44, Anonymous Nafnlaus said…

    óóój hvað ég ætla ALDRE að drekka kók aftur, :/

     
  • At 17/5/07 15:45, Anonymous Nafnlaus said…

    þetta er sko Bjarndís sem var að skrifa ;)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter