Gautaborg
Við skötuhjúin erum að fara til Svíþjóðar á fimmtudaginn og ætlum að vera í Gautaborg.
Þetta er árshátíðarferð hjá vinnunni hans Jónmundar og erum við orðin verulega spennt:)
Ég er reyndar að farast úr flughræðslu og kvíði mikið fyrir fluginu...fæ svona hnút í magann þegar ég hugsa til þess :( Jónmundur hefur samt lofað mér því að passa mig og hjálpa mér í gegnum þetta ferli.
En við ætlum nú að hafa rosa gaman úti.
Við ættum að vera komin á hótelið um 16:00, hendum okkur í sturtu og hrein föt, förum svo í siglingu þar sem við borðum kvöldmat.
Á föstudagsmorgun er skoðunarferð og svo alveg frjáls dagur en við erum 8 sem ætlum að fara út að borða saman um kvöldið í Tívolíinu Lisjeberg.
Laugardagurinn er frjáls nema um kvöldið en þá er árshátíðin haldin á veitingastað í borginni.
Ég held að þetta verða feikna mikið fjör hjá okkur:)
Við fórum fyrir tveimur árum með fyrirtækinu til Barcelona og það var alveg ótrúlega vel heppnuð ferð og skemmtileg, þessi verður varla síðri:)

5 Comments:
At 15/5/07 09:43,
Nafnlaus said…
Þetta verður algjört æði hjá ykkur! Vonandi fáið þið rosa gott veður og hafið það bara geggjað gott! :) :)
Kveðja úr álverinu
At 15/5/07 12:13,
Nafnlaus said…
Ji það verður gaman hjá ykkur!
Hafið það rosalega gott :)
At 15/5/07 22:43,
Nafnlaus said…
Góða ferð góða ferð góða feeeerrð :-) Mundu bara að hugsa um að þetta sé eins og að vera í bíl
At 16/5/07 17:15,
Nafnlaus said…
Góða ferð og góða skemmtun!!
Það er MUN HÆTTULEGRA að ferðast í bíl en flugvél ;o)
Svo slakaðu bara á og njóttu ferðarinnar.
Íris
At 27/5/07 14:16,
Nafnlaus said…
það var 14 maí sem þú bloggaðir síðast woman :O
nýja síðan mín er www.flugga.blog.is
sjáumst vonandi fljótt aftur :)
Skrifa ummæli
<< Home