Oddny bloggar

13 nóvember 2007

Íbúðin er farin

Já eins og titillinn segir til um að þá erum við búin að selja íbúðina okkar, hún fór í síðustu viku og er okkur hjúum mikið létt þó við hefðum gjarnan viljað eiga hana. Leigumarkaðurinn er bara svo mikið happdrætti og vorum við ekki til í að treysta á að fá góða leigjendur þannig að þetta er bara mjög gott mál!

Jólaandinn er að detta á mig hérna fyrir austan og gerði ég mér lítið fyrir og spilaði jólalög í gær og bakaði lagtertu mínum heittelskaða til mikillar ánægju:)
Já ég er farin að hlakka alveg ofsalega til jólanna enda mikið jólabarn, ég þarf að hemja mig í að halda skreytingunum ofan í kassa en bíð þess í ofvæni að taka það upp og skreyta húsið greinum grænum falalalala falalala!

Róbert kom í fyrsta skipti um daginn og var í tæpa viku hjá okkur, það var rosa gaman hjá okkur og var hann ekki lengi að eignast vini hér. Hann fór líka í fyrsta skipti í flugvél og fannst honum það alveg ótrúlega skemmtilegt:) Hlökkum bara til þess að hann komi aftur.

Jónmundur fór í bæinn í síðustu viku og sótti Róbert í skólann og var með honum þann daginn, Róbert hringdi og tilkynnti mér að það væri sko strákadagur hjá þeim feðgum og var hann ótrúlega montinn með það litli kallinn:)
Ef þú lest þetta blogg þá máttu gjarnan kvitta fyrir komunni, ég nenni ekkert að blogga ef enginn er að lesa:)
Bestu "jóla" kveðjur úr dalnum!

12 Comments:

  • At 13/11/07 11:21, Anonymous Nafnlaus said…

    Sæl elskan!
    Það er óhætt að segja að þín sé sárt saknað hérna!!
    Ég er líka komin í jólagírinn. Langar sko að fara að skreyta! Ætla að stelast til þess eftir eftir helgi! Siggi vill ekki fá neitt skraut því að við verðum fyrir austan um jólin! Mér er sama ég þarf að dúsa hérna fram að 20 des!
    Ég ákvað að kvitta hjá þér elskan. Sama hjá mér ef enginn kvittar þá nenni ég ekki að blogga. :)
    Mátt alltaf kommenta hjá mér! :) Guðvelkomið!
    Vona að þið hjónakorn hafið það gott í firðinum fagra!
    Get ekki sagt annað en að ég sakna þess að vera þarna í kyrrðinni!
    Hafðu það gott elskan.
    Kíki nú á þig þegar ég kem austur. :)

     
  • At 13/11/07 14:51, Blogger Helga Björg said…

    Ég kíki sko alltaf mjög reglulega!! Gleymi bara stundum að kvitta... hehe...

    Já jólagírinn! Hann er sko að komast í full sving hjá mér!
    Gulli er sem betur fer líka mikið jólabarn og er alveg orðinn æstur í að fara að skreyta :)

    fer að styttast í að maður geti farið að skreyta með "góðri samvisku" híhí...

    Bjalla á þig við tækifæri og fæ nánari fréttir af þér! :)

    Knús austur

     
  • At 13/11/07 16:44, Blogger Oddny Inga said…

    Takk fyrir að kvitta stelpur mínar og engin smá "kvitt" hehehe.
    Gott að heyra að við erum fleiri sem erum komin í jólagírinn:)
    Nú fer ég og kvitta hjá ykkur skvísur;)
    Hlakka til að sjá þig Hulda mín hér í firðinum fagra;)
    Hlakka til að heyra í þér Helga mín:)

     
  • At 13/11/07 17:15, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kíki alltaf reglulega hér til þín. Nenni reyndar ekki alltaf að kvitta... en ég er nú alveg sammála þér með jólagírinn...það styttist í jólaljósin á þessum bænum.
    En við sjáumst væntanlega fljótelga.
    Drífa

     
  • At 13/11/07 20:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég kíki reglulega, Nenni ekki alltaf að kvitta.
    Er ekki langt til jóla.

    Pabbi

     
  • At 14/11/07 08:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæhæ
    Ég kíki alltaf reglulega :o)
    Gott að það fer vel um ykkur :)
    Ertu komin með vinnu ?

     
  • At 14/11/07 12:19, Anonymous Nafnlaus said…

    Sæl Oddný
    Gaman að þér líði vel fyrir austan, alltaf sama hér á bæ.
    kveðja Sjöfn Þórðar

     
  • At 15/11/07 19:06, Blogger Oddny Inga said…

    @Drífa...Já mér líst vel á þig frænka! Við sjáumst allavega í laufabrauðsgerðinni ef þið systur finnið tíma hehehe:)

    @Pabbi...Nei nei það er ekkert langt til jóla...þetta er bara að bresta á, fyrstu jólaljósin í bænum eru komin upp:)

    @Helen...Já við erum voða sátt bara, ekki beint komin með vinnu en samt svona aðeins smá í sigtinu;)

    @Sjöfn...Gaman að þú skyldir kvitta, ég frétti að þú hafir fengið aðstoð hehehe:) Ég vona að þú hafir það ofsalega gott:)

     
  • At 15/11/07 22:51, Anonymous Nafnlaus said…

    hæææææææææ!... veistu ég er búin að föndra og skrifa í öll jólakortin :) en það er bara vegna þess að ég er búin að vera heima alla vikuna með stelpuna veika og um að gera að láta hana hjálpa sér við þetta :) Til hamingju með að selgja íbúðina :)

    Kv. Mía

     
  • At 16/11/07 17:31, Anonymous Nafnlaus said…

    Kíki við á reglulegum blogg"rúnti" ;o)
    Hér er allt komið á full swing í kökubakstrinum eins og þú kannski varðst vör við um daginn hehehe, er reyndar búin að bæta við 1 tegund og botnum í sörurnar, þannig að það eru komnar 5 tegundir + sörubotnar!
    Og svo er það laufabrauðið, það er alltaf eitthvað sem þarf að skemma :@ veðrið, skólastúss eða íþróttir!! (pirr pirr, já og jafnvel ólétta :o/ hún hjálpar ekki til þessa dagana !!) gæti verið að fletja út en veit ekki hversu mikið ég get í því!
    Og ég get nú sagt þér að Viggó er eitt minnsta jólabarn sem ég veit um (liggur við!) og hann er sko farinn að hugsa um að hengja upp útijólaseríur og þá er nú mikið sagt.
    Haltu áfram að blogga ;o)
    Sjáumst
    kveðja Íris

     
  • At 23/11/07 12:24, Blogger Unknown said…

    Ég les :-) kvitta bara ekkert alltaf, ég hélt nú reyndar að þú værir hætt af því að ég var búin að sjá svo oft færsluna á undan þessari :-)

    Hafðu það nú gott í sveitinni!

    kv. Rakel

     
  • At 29/11/07 22:15, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ krútta mín.
    Ég er nú ekki dugleg að kvitta hjá þér en kíki mjög reglulega á myndasíðuna þína og mér finnst hún sko æði. Þú ert algjör snilli :)
    Ég sakna þín helling :( Þú verður að kíkja í heimsókn næst þegar þú kemur í bæinn.

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter