Læra læra
Nú á ég að vera að læra, ég er nú búin að vera mjög dugleg í dag.
Ég leyfði mér þó að fara á tískusýningu hjá krökkum úr listaháskólanum, þar var Tinna frænka með fatalínu sem var mjög flott og alveg föt sem ég gæti hugsað mér að ganga í en margir voru með fatnað sem var bara alveg út úr kú!
Við Þórey skemmtum okkur vel við það að skoða allt fólkið sem var vægast sagt mjööööög speees!!! Mikið af fólki úr þessum listamannaheimi, alveg í fáránlegum fötum að mínu mati.
En mikið er nú samt gott að við erum ekki öll eins.
Eimskip stóð fyrir óvissuferð til útlanda núna á föstudaginn og mér til mikillar ánægju eða þannig að þá eru þau í Barcelona...ohhhh af hverju skráði ég mig ekki??? Ég er svo biluð að ég þori ekkert að fara í svona óvissuferðir...ég vil bara vita hvert ég er að fara! En núna þegar ég veit hvar þau eru þá langar mig svo að vera í Barcelona líka...alveg geggjuð borg, við fórum þangað með vinnunni hans Jónmundar fyrir tveimur árum og ég kolféll!!!
Svo gistir Eimskips liðið á Hilton í þokkabót!
Æjjj jæja ég vona bara að það sé ógeðslega gaman hjá þeim og eins gott að þau komi með helling af nammi í vinnuna á mánudaginn:)
Ætla að halda áfram að læra...

Við að borða í Ólympíuþorpinu í Barcelona, apríl 2005

4 Comments:
At 25/3/07 18:20,
Nafnlaus said…
Oddný!! Að sjálfsögðu ferð þú í næstu óvissuferð! Það var bara gaman í fyrra þegar við fórum til Kanada (ég meira að segja komin langt á 7. mánuð meðgöngu) og eflaust ekki leiðinlegra á Spáni.
Klikkar ekki einu sinni enn!! (verst að ég get ekki komið með)
Kv. Drífa
At 25/3/07 22:00,
Nafnlaus said…
Við förum bara saman næst og höldum fjörinu uppi :-)
At 27/3/07 11:18,
Nafnlaus said…
Það var VÆGAST sagt FRÁBÆRT! æðisleg ferð og fullkomlega heppnuð í alla staði! Ég skrái þig sjálf í þá næstu og þú kemur með.! :) :)
At 27/3/07 11:52,
Oddny Inga said…
Já held að það sé bara málið að láta vaða í næstu ferð! Ég var allavega mest fúl alla helgina að hafa ekki farið með!
Skrifa ummæli
<< Home