Oddny bloggar

18 mars 2007

Skriðin á fertugsaldurinn...hálfsextug

HAPPY BIRTHDAY TO ME
HAPPY BIRTHDAY TO ME
I LOOK LIKE A MONKEY
AND I ACT LIKE ONE TOO
:):):)

Jamm þá er komið að því, hálfsextug eins og tengdó orðaði það pent hehehe
Ég er nú voðalega róleg yfir þessu og ekkert að velta aldrinum fyrir mér
Mér finnst þetta bara allt í lagi
Enda lífið rétt að byrja :)
Ég hélt upp á afmælið á föstudaginn, hélt heljarinnar partý, var með hattaþema sem var alveg ótrúlega skemmtilegt og hristi fólkið saman...
Mættu hátt í 40 manns sem færðu mér ótrúlega fallegar og veglegar gjafir
Ég á alltaf svo erfitt með að taka á móti gjöfum, fer í keng og veit ekkert hvernig ég á að vera
Takk innilega fyrir mig:)
Ég fékk:
Eva Solo karöflu, ótrúlega smart
Æðislegan kertastjaka f/6 kerti, svona rör sem hægt er að setja skreytingu í
L´occitane body lotion, sturtusápu og body skrúbb, geðveikar vörur, prófaði í morgun
Ilmkerti, 4 í pakka
Læsebriller, skærbleikar með styrkleika +3.5 hehehe
Flottan stóran glervasa
Wedding planner bók hehehe
Töffaralegar grifflur
Geggjaðan lampa
Webcameru og headset svo ég geti spjallað við pabba í úglöndum:)
AEG Saumvél sem mig hefur dreymt um síðan ég fermdist
Rosalega fallega mynd og ljóð
Silfurgaffal
20.000 kr gjafabréf hjá Icelandair
10.000 kr gjafabréf í Kringlunni
7.500 kr gjafabréf í Smáralind
10.000 kr gjafabréf í Smáralind
8.000 kr gjafabréf í Smáralind
Rauðvínsflösku, Hvítvínsflösku, Freyðivínsflösku...
Kampavínsflösku
Koníaksflösku...hún var samt eiginlega handa Jónmundi :)
Rósir
Svo var að bætast við rétt í þessu gjafabréf í Mecca Spa fyrir 13.000 kr frá samstarfsfólkinu
Alveg á ég eftir að taka mér dag og njóta þess í botn:)
Þröstur og Danni voru með mörg og skemmtileg skemmtiatriði, héldu alveg stuðinu gangandi!
Ótrúlega skemmilegir strákar:)
Langflestir komu með hatta og þegar leið á seinnipart kvölds þá kusu allir hver væri með flottasta hattinn.
Það voru kúrekahattar, tveir mexíkóhattar, einn með belju, tveir ítalskir mafíuósar, rauð blikkandi horn, alpahúfa, ekta slökkvistjórahúfa frá Þýskalandi, pæju og gæja hattar, rebba og kanínu eyru, tveir hjálmar, einn setti meira að segja servíettu á hausinn þar sem hann "gleymdi" hattinum heima;) það vantaði ekki hugmyndaflugið í mannskapinn.
Danni vann en hann var með beljuna á hausnum, hann var mjöööög montinn að hafa unnið Þröst sem var lítill mexíkani með som som brero.
Í verðlaun fékk Danni páskaegg, alkaseltzer, 3 afréttara, gos, nammi og poka til að setja klaka í sem maður leggur svo við höfuðið þegar maður er með hausverk og eitthvað fleira.

En partýið var alveg geggjað, ég hef ekki skemmt mér svona vel í mörg ár... :)
Ég er alveg í skýjunum með þetta :)

Á sunnudaginn vorum við svo með kaffi fyrir fjölskylduna sem var gaman líka
Við vorum með gesti frá kl hálf fjögur til tíu bara að spjalla og hafa gaman

Takk ALLIR fyrir ógleymanlegt og frábært afmæli
Þrítugsafmælinu mínu á ég eftir að muna til síðasta dags
GEÐVEIKT :)



12 Comments:

  • At 19/3/07 07:07, Anonymous Nafnlaus said…

    Hörku fjör hefur verið... sé soldið mikið eftir því að hafa ekki komið... en... svona er það nú...

    En...

    TIL HAMINGJU MEÐ DAGINN ODDNÝ MÍN... elska þig...

    Knússssss og klemmm


    Habba sys

     
  • At 19/3/07 09:31, Anonymous Nafnlaus said…

    Innilega til hamingju með daginn elsku frænka!! Greinilega mikið stuð.
    Kveðja Drífa

     
  • At 19/3/07 09:57, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með afmælið Oddný.... Þetta er náttla bara mjög jákvætt, ég held að núna hefjist bestu árin sko, allavega hlakka ég mikið til að komast á þennan aldur... þó svo að það sé MJÖG langt þangað til :) Bið að heilsa liðinu sem ég þekki í vinnunni... knús og kossar!
    Sigrún Hauksdóttir
    v/ afgreiðsludama á Flytjanda.

     
  • At 19/3/07 13:50, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með afmælið! Hafðu það gott í dag og hafðu það gott í mekka spa :-)

     
  • At 19/3/07 14:09, Blogger Oddny Inga said…

    Habba...Jámms þú misstir af miklu sko og Drífa þú líka! En nei maður getur ekki verið alls staðar.
    Sigrún...þú gamla geit, gaman að þú skyldir kvitta fyrir komunni:)
    Og takk allar fyrir kveðjuna :)

     
  • At 19/3/07 14:22, Anonymous Nafnlaus said…

    Innilega til hamingju með afmælið skvísin! :)
    Og þúsund þakkir fyrir mig á föstudaginn, þetta var alveg æðislegt hjá ykkur! :)

    Bless kex í bili
    Skagamærin

     
  • At 19/3/07 15:18, Anonymous Nafnlaus said…

    vá það munar ekki um glæsilegar gjafir :)
    Til hamingju með daginn og njóttu hans :)

     
  • At 19/3/07 15:55, Blogger Oddny Inga said…

    Danke danke stelpur:)
    Já þetta var bara ansi vel heppnað hjá okkur held ég :)
    Og já ekkert smá mikið af æðislegum gjöfum:)

     
  • At 19/3/07 20:36, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með daginn Oddný mín ;o)
    Kveðja
    Íris og fjölsk.
    Egs.

     
  • At 21/3/07 19:20, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með afmælið krútta mín. Bara búin að ná mér :D

    Bestu kveðjur
    Ásdís

     
  • At 23/3/07 23:38, Anonymous Nafnlaus said…

    Hæ hæ Oddný
    Það var rosalega gaman að rekast á þig í Kringlunni um daginn. Um kvöldið þann dag var ég í tölvunni og fór að hugsa um það þegar ég hitti þig og ákv að gúgla þig og fann þá þetta blogg. Gaman að því, hehe. Og bara velkomin í hverfið, þetta er æðislegt hverfi, mér líður súper vel hérna.

    Kv. Brynja Sif

     
  • At 24/3/07 23:09, Blogger Oddny Inga said…

    Brynja Sif, takk fyrir að kvitta:) Gaman að rekast á þig líka, og já þetta er bara mjög fínt hverfi, mér líður bara vel hérna:)
    Takk fyrir kveðjurnar allar;)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter