Lasarusinn mættur aftur
Jæja...
Ég er nú kannski ekki heimsins besti bloggari en ég hef alveg ástæður fyrir því...
Jamm við náttla fluttum og netið er enn ekki komið hjá okkur...eitthvað vesen í gangi með það en ætti nú að fara að koma.
Svo er ég líka búin að vera lasin síðan 14.febrúar takk fyrir pent...hresstist reyndar örlítið á milli og fór einn dag í vinnuna en sló svona líka niður og lá í rétt tæpa viku aftur með 40 stiga hita í þrjá heila daga áður en hitinn fór að lækka...það var pínu scary og helvíti þreytandi með verkamenn í húsinu að bora og berja og saga og allan pakkann...ég var hreint og beint að verða vitlaus á þessu ástandi og var ávallt mjög glöð þegar kallarnir skelltu sér í mat hehehe:)
Annars er bara allt ljómandi að frétta af okkur.
Við gerðum heiðarlega tilraun til að fara í bíó í gærkvöldi, ætluðum að fara að sjá The last king of Scotland en viti menn...það var biðröð í Smárabíói út úr dyrum svo við kíktum bara á Guðmund og Önnu í staðinn.
Ég fer svo að reyna að bæta mig sem bloggari hehehe:)

1 Comments:
At 26/2/07 13:12,
Helga Björg said…
Mikið var... hehe... :) :)
Gott að þér er nú loksins batnað!!
Væri búin að reyta af mér hárið ef ég væri svona lengi veik!! öss...
Svo er bara um að gera að vera duglegri að blogga mín kæra!
Það bætir og kætir c",)
Skrifa ummæli
<< Home