Oddny bloggar

06 febrúar 2007

FLUTT

Jebbs haldiði að við höfum ekki bara rumpað flutningunum af í þynkunni á sunnudaginn...
Við fengum líka ómetanlega hjálp frá góðu fólki, sterkum mönnum og úberkraftmikilli vinkonu:)
Svo fengum við gefins sófa, lánað eldhúsborð og sjónvarp fyrir litla manninn.
Takk allir fyrir hjálpina, við hefðum aldrei getað þetta án ykkar:)
Sváfum fyrstu nóttina á sunnudaginn, ég ætlaði aldrei að sofna en svo þegar ég loksins sofnaði að þá vaknaði ég upp við martröð...hélt að það boðaði einhverja ólukku en mig dreymdi að íbúðin væri morandi í kóngulóm og alveg huge stórum en þegar ég pakkaði upp Stóru Draumaráðningabókinni í gærkvöldi og ákvað að kanna málið, þá kom í ljós að kóngulær í draumi eru fyrir peningum og ef maður drepur eina þá er það fyrir hamingjusömu lífi, í draumnum lét ég Jónmund drepa eina þannig að hann hlýtur að vera hamingjusamur hehehe...
...ég er það nú samt líka...
Við erum enn að taka upp úr kössum, Ásta systir kom og hjálpaði okkur í gær alveg helling, það munar svo um alla hjálp sem maður fær. Takk Ásta:)
Við stefnum á að vera búin að klára þetta helst fyrir helgi, ég verð í fríi á fimmtudaginn og ætti að geta klárað slatta þá.
Það er búið að vera mikill gestagangur hjá okkur og það er sko gaman þannig að anyone, ef þú leið hjá og þekkir okkur náttla þá er bara að kíkja í kaffi:)

11 Comments:

  • At 7/2/07 13:44, Blogger Málverk said…

    Hæ Hæ
    og hjartanlega til hamingju.
    Þú ættir að fá Webcameruna fljótlega eftir helgina svo þú getir sýnt gamla manninum alla dýrðina. Enn og aftur til HAMINGJU

    Kv frá DK

     
  • At 7/2/07 14:23, Blogger Oddny Inga said…

    Takk fyrir það gamli minn hehehe:)
    Já það verður gaman að fá Webcameru, takk fyrir það:)
    Bið að heilsa út.

     
  • At 7/2/07 18:08, Anonymous Nafnlaus said…

    Enn og aftur.. Bara til hamingju!!
    Ég kíki í kaffi við tækifæri :D
    Kv. Drífa

     
  • At 7/2/07 18:10, Blogger Helga Björg said…

    Alveg frábært - hlakka svo til að sjá fínu íbúðina þína!
    Frábært að eiga svona góða að sem geta hjálpað.... :)

     
  • At 9/2/07 00:35, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með íbúðina :)

    Kveðja Ásdís

     
  • At 13/2/07 15:23, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með flutningana snúlla!! Ekki laust við smá öfund hérna megin.... hehehe..

     
  • At 13/2/07 15:24, Anonymous Nafnlaus said…

    Plehh... (vissi að ég var búin að segja til hamingju í færslunni á undan)
    Hvenær er svo partý ? ;)

     
  • At 13/2/07 15:24, Anonymous Nafnlaus said…

    Bara svona fyrst ég er byrjuð...
    Viltu þá ekki 3 comment?

     
  • At 13/2/07 15:24, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju aftur með íbúðina :-) nú geturu farið að blogga meir hahaha

     
  • At 13/2/07 15:36, Blogger Oddny Inga said…

    Hey er komin bloggpressa shit!
    Það er ekkert net komið heima, er maður þá ekki smá afsakaður eða?
    Jæja reyni að græja þetta hið allra fyrsta:)
    Og takk allir fyrir kvittin og kveðjurna:)

     
  • At 19/2/07 08:35, Blogger Helga Björg said…

    HALLÓ HAFNAFJÖRÐUR SKO.... blogg takk! :)
    Ég verð að fá nýjasta slúðrið! :)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter