Prófadjöfullinn...
Jæja þá er ég búin að fá linsuna mína og get ég varla beðið eftir að prófin séu búin svo ég geti farið að leika með myndavélina mína!!!
Annars er það að frétta að ég er búin að vera að læra til miðnættis í rúma viku, alltaf eftir vinnu og svo um helgina frá 9 á morgnana...Stærðfræðipróf í dag og íslenska á morgun en þá er ég líka búin í prófum!!!
Svo ætlum við bekkjarfélagarnir að skella í okkur einum eða tveimur köldum á morgun eftir prófið...ég hugsa að ég þurfi ekki nema 1/2 og þá er ég góð hehehe:)
Frí á fimmtudaginn og ég ætla að taka mér frí líka á föstudaginn og fá langa helgi.
Róbert litli kemur á föstudaginn og er ég þar með komin með fínt módel í myndatöku:)
Ég er verulega stressuð fyrir stærðfræðiprófið í dag!!!
Allt of mikið efni og lítill tími til að æfa sig!!!
Allir að krossa fingur fyrir mig:)

11 Comments:
At 17/4/07 12:26,
Nafnlaus said…
Vá gangi þér rosalega vel!!
Ég skal tuffa á eftir þér í dag
At 17/4/07 12:39,
Nafnlaus said…
Þú massar þetta próf í dag. Þetta er alveg að verða búið. Braka a leg :-)
At 17/4/07 13:01,
Nafnlaus said…
vá gangi þér rosalega vel.Þetta er bara alveg að verða búið. Skemmtu þér vel með nýju linsuna þína og módelið ;)
At 17/4/07 13:07,
Nafnlaus said…
Ég tuffa líka, hafðu bara trú á sjálfri þér. kv. Gróa.
At 17/4/07 13:15,
Nafnlaus said…
Ohhh gangi þér vel í dag!!! :)
Þú tekur þetta í nefið - ekki spurning....
Svo verðuru að setja inn smá myndasyrpu um eða eftir helgina!!!
Klárt??
Okbæ
At 17/4/07 13:16,
Nafnlaus said…
Þetta var sko Helgan.... :)
At 17/4/07 13:27,
Nafnlaus said…
Gangi þér vel. Þú ert svo ansi klár að þú massar þetta léttilega stelpa :)
Ég skal tuffa, tuff tuff :O)
At 17/4/07 15:42,
Oddny Inga said…
Takk dúllurnar mínar...
anda inn...anda út...
Ég geri mitt besta...takk fyrir öll tuffin:)
At 17/4/07 21:59,
Unknown said…
Hefði krossað fingur fyrir þig í dag, ef ég hefði lesið þetta blogg nógu snemma, en vænti þess að þú hafir nú rúllað þessu upp, sko!!
En til lukku með myndavélina (öfunda þig geggjað!!)
Gangi þér vel í hinu prófinu.
Kveðja Íris
At 18/4/07 20:55,
Nafnlaus said…
Þegar þetta er lesið ertu búin í prófum og eflaust búin að skella þessum 1/2 í þig. Segi bara til hamingju og efast ekki um að þú hefur rúllað þessu upp.
Skemmtu þér vel með myndavélin, sem er b.t.w. svaka fín.
Kveðja að austan
Drífa
At 26/4/07 15:24,
Nafnlaus said…
heyrðu er einhver bloggpása í gangi eða hvað!
Skrifa ummæli
<< Home