Oddny bloggar

02 janúar 2007

BÓNORÐ Í JÓLAGJÖF:)

Já hann Jónmundur minn fór á skeljarnar á aðfangadag og ég sagði JÁ að sjálfsögðu enda GULL að manni og gæti ég ekki hafa fundið betri mann:)
Jónmundur er soddan smekkmaður og valdi svo gullfallegan hring handa mér, ég hefði ekki getað valið hann betri sjálf.
Pabbi, Bjarndís og Veigar voru hjá okkur og það var alveg meiriháttar að fá að hafa þau, við borðuðum hefðbundinn hamborgarhrygg, opnuðum pakka og spiluðum, Aron kom svo í kaffi og meððí:)
Pabbi fór svo út aftur milli jóla og nýárs en það var svo gott að hafa hann.
Þetta voru þau allra bestu jól sem ég hef átt á allri minni ævi:)
Gamlárskvöldi eyddum við svo hjá Kolla bróður Jónmundar og fjölskyldu þeirra, við borðuðum góðan mat og sprengdum mikið, æðislega gaman hjá okkur:)
Í hádeginu á Gamlársdag seldum við líka íbúðina, þetta gerðist mjög hratt og erum við ekki alveg búin að átta okkur á þessu ennþá en erum farin á fullt að leita að nýrri eign:)
Nýjársfagnaður hjá Þresti og Auði í gær sem var alveg ótrúlega gaman, strákarnir elduðu geggjaðan mat handa okkur og svo var spilað fram á nótt, ég kynntist nýrri hlið á mínum í gær en það kom í ljós að hann er keppnismaður mikill, ætlaði hann aldeilis að rústa okkur stelpunum en við unnum náttla hehehe:)
Myndirnar tala svo bara sínu máli:)
Gleðilegt nýtt ár alle sammen:)

14 Comments:

  • At 3/1/07 08:09, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju aftur með trúlofunina og íbúðina. Þetta er bara frábært :-)

     
  • At 3/1/07 08:22, Blogger Helga Björg said…

    Til lukku Oddný mín með bónorðið og íbúðina og bara allt :)

    Ekkert smá æðislegt! :) :)

     
  • At 3/1/07 08:29, Blogger Oddny Inga said…

    Já takk fyrir það stelpur...
    Ég er heppnust í heimi:)
    Og Rakel til hamingju sömuleiðis:)

     
  • At 3/1/07 08:30, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með allt :)
    Æðislegt! :o)
    Gangi ykkur vel að finna nýja íbúð, svo sameinumst við þar og tökum lagið í Sing Star :o)

     
  • At 3/1/07 08:31, Blogger Oddny Inga said…

    Díll:)
    Sing Star Partý hjá mér í nýju íbúðinni!!! :)

     
  • At 3/1/07 11:48, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með þetta allt saman elsku frænka mín.
    kveðja Drífa

     
  • At 3/1/07 15:58, Blogger Oddny Inga said…

    Takk fyrir það Drífa mín:)

     
  • At 3/1/07 16:00, Anonymous Nafnlaus said…

    Þá er það ákveðið!! Ég kem allavega :o)
    Einn tveir nú allir gólum saman,
    allir þeir sem hafa af skál,
    og kvennafari gaman,
    gráti, væli og grenju tón
    ei gegni nokkur kjaftur,
    syngjum dátt og höfum hátt,
    helltu í glasið aftur.
    SKÁL !

     
  • At 4/1/07 00:49, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju elsku dúllan mín :) Bæði með trúlofunina og íbúðina. Bara frábært allt saman :D
    Koss og knús
    Ásdís

     
  • At 4/1/07 07:54, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju aftur með bæði trúlofunina og íbúðina. Gangi þér vel að finna nýja íbúð :) nóg er allavega úrvalið :)

     
  • At 4/1/07 08:23, Blogger Oddny Inga said…

    Takk takk Ásdís mín og Karen :)
    Maður er náttla bara í skýjunum:)

     
  • At 4/1/07 19:26, Anonymous Nafnlaus said…

    Þið eruð bara hreint út sagt svo yndisleg :) innilega enn og aftur til hamingju...

    elska þig... knúzíbúz..

    Hrafnhildur sys

     
  • At 6/1/07 01:30, Anonymous Nafnlaus said…

    VÁ TIL HAMINGJU, en verð að segja þér að ég fann þetta á mér, svona um leið og ég ýtti á linkinn.... hugsaði; ætli hann hafi ekki bara beðið hennar? og jú það fyrsta sem ég sé!!!! fyndið!
    Engin smá æðisleg jól hjá þér og ykkur, loksins.... og til lukku aftur, þú átt allt það besta skilið frænka!

     
  • At 6/1/07 17:52, Blogger Oddny Inga said…

    Sædís skyggn bara:) Fyndið, þú hefur fundið þetta á þér:)
    Takk fyrir sys og frænks:)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter