Oddny bloggar

15 janúar 2007

Íbúðarkaup

Einhverjir eru að kvarta undan bloggleti hjá mér undanfarið en það er bara svo mikið að gerast hjá okkur að það er ekkert venjulegt...
Eins og fram kom í síðasta bloggi að þá trúlofum við okkur á aðfangadag, seldum á gamlársdag og erum núna að gera tilboð í geggjaða íbúð en hér er slóðin fyrir þá sem vilja kíkja.
Þessi íbúð er á fyrstu hæð og okkur finnst hún allavega algjör draumur í dós og erum bara með hjartað í buxunum að bíða eftir svari og græja og gera.
Annars vakti snjórinn um helgina mikla lukku í okkar koti, fórum á sleða, duttum á hausinn og vorum alveg úrvinda eftir þriggja tíma útiveru...fórum svo í kaffi til Elínar og Danna, takk æðislega fyrir vöfflurnar kjella :)
Allt bara komið í fastar skorður fyrir utan að vera á milli íbúða, skólinn byrjaður aftur eftir jólafrí og er ég bara nokkuð spennt yfir önninni.
Myndirnar sem áttu að koma með síðasta bloggi...jaaaa mér gekk eitthvað illa að setja þær inn en kem til með að græja það um leið og tækifæri gefst...
Þar til næst,
Veriði sæl:)

8 Comments:

  • At 15/1/07 12:23, Blogger Helga Björg said…

    Til lukku með færsluna... mikið var! :) hehe

    Vonandi gengur þetta upp með íbúðina! Hún er alveg geggjuð!!!!

     
  • At 15/1/07 14:07, Anonymous Nafnlaus said…

    Mikið var... :-) Til hamingju með íbúðina. Hún er bara flott :-)

     
  • At 15/1/07 14:07, Anonymous Nafnlaus said…

    Glæsileg íbúð - gangi ykkur rosa vel og vonandi gengur þetta upp ! Hlakka til að koma í sing star partý :o)

     
  • At 15/1/07 14:10, Anonymous Nafnlaus said…

    Til hamingju með nýju íbúðina :)

     
  • At 15/1/07 14:14, Blogger Oddny Inga said…

    Já nú er bara að krossa fingur og vona það besta...en ef af verður þá skuluð þið fara að undirbúa ykkur fyrir Singstar Partý ársins!!!

     
  • At 15/1/07 15:59, Anonymous Nafnlaus said…

    Ég er tilbúin!!! haha :)

     
  • At 18/1/07 14:11, Anonymous Nafnlaus said…

    hvernig fór með íbúðina svo ???

     
  • At 18/1/07 16:00, Anonymous Nafnlaus said…

    Geggjuð íbúð. Vona að þið fáið hana. Ég væri til í svona íbúð :)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter