Prófum lokið...Jólaundirbúningur hafinn
Sælt veri fólkið.
Nú er prófum loksins lokið og ég er farin að anda aðeins rólegra.
Ég tók þrjú próf og er ég búin að fá niðurstöðu úr einu sem er enska...nú ætla ég örlítið að monta mig...en mér finnst ég alveg mega það því ég er búin að standa mig mjööööög vel...ég fékk sem sagt 9.5 í ensku sem var hæsta einkunn en það voru 2 sem fengu þessa einkunn. Ég er ótrúlega glöð með þetta og soldið montin líka:) Nú bíð ég bara spennt eftir að fá niðurstöðurnar úr stæ og ísl en ég geri ekki ráð fyrir að vera hæst í þeim greinum...sjáum bara hvað setur:)
Á sunnudaginn 3ja des fórum við litla fjölskyldan í Brynjudal á vegum Eimskips að ná okkur í jólatré. Við fórum með rútu sem þeim stutta þótti einkar spennandi, sátum að sjálfsögðu fremst til að missa ekki af neinu! Þegar í Brynjudal var komið löbbuðum við upp og niður fjallshlíðina í leit að fallegu jólatré handa okkur. Að lokum fundum við eitt sem feðgarnir hjálpuðust að við að saga. Þegar þeir voru búnir að saga tréð snérum við okkur við og sáum þá "fullkomna" tréð, en við vorum nú ekkert með neina græðgi og létum bara hitt duga. Róbert týndi nokkrar greinar sem við eigum eftir að nota í eitthvað föndur.
Við röltum niður eftir og fengum okkur heitt kakó og kökur, hlýjuðum okkur við varðeldinn og hittum nokkra jólasveina sem voru nú soldið skrítnir, einn lét meira að segja pakka sér inn eins og jólatré en Róbert vildi að sjálfsögðu gera slíkt hið sama sem við fengum hann nú af fyrir rest:)
Við héldum svo af stað upp í rútu, settumst í sömu sæti s.s. fremst. Rúturnar voru þrjár en einungis einn bílstjóri sem tilkynnti okkur það að hann hafði týnt hinum tveimur upp í fjalli, obbosí...en hann hafði þó tvo jólasveina sem hann hreinlega varð að kenna að keyra því einhvern vegin varð hann að koma okkur í bæinn...Róbert trúði ekki sínum eigin augum þegar jólasveinninn kom inn í rútu...kallaði hana sleða og fór að fikta í öllum tökkum. Honum fannst þetta mjög fyndið en adrenalínið fór samt af stað...þið vitið þegar maður er hræddur en samt spenntur og fer að hlæja svona taugaveiklunarhlátri...well krakkinn var akkúrat þannig:) Við héldum af stað og sveinki var ekki alveg besti sleðastjóri í heimi en við hikstuðum fyrsta hálftímann og ég var orðin bílveik! Róbert hjálpaði honum þó alla leið í bæinn, benti honum á að hann mætti alls alls alls ekki keyra með okkur út í sjó eða utan í vegriðið (hreinlega öskraði BEYGJA BEYGJA BEYGJA). Róbert hélt fast í handriðið fyrir framan sig, sagði sveinka hvar og hvenær hann átti að beygja osfv og svo heyrðist alltaf HJÚKKET eftir beygjurnar og það. Krakkinn var að drulla í bussurnar af hræðslu.
Þetta var samt mjög skemmtilegt og við Jónmundur hlógum okkur máttlaus yfir Róberti ásamt fleirum í rútunni en við fengum að heyra það þegar við komum út að hann hefði farið á kostum...að þetta hefði ekkert verið gaman nema af því að hann var svo fyndinn og trúði þessu svo innilega:) Litli kúturinn.
Við skötuhjú fórum í gær og keyptum flestar jólagjafirnar...einungis nokkrar eftir núna:)
Ég er búin að skreyta alveg næstum því...vantar bara eina seríu í glugga og þá er það komið!
Ég er byrjuð að baka, bakaði hnoðaða lagtertu í gær, ætla að setja kremið á núna þegar þessari löngu bloggfærslu er lokið:)
Svo erum við búin að bjóða nokkrum krökkum og foreldrum í piparkökubakstur á laugardaginn sem verður bara gaman:)
En jæja látum þetta gott heita...
Kv Oddný komin í jólahaminn múhahaha:)

8 Comments:
At 12/12/06 10:04,
Nafnlaus said…
Til hamingju með glæsilega einkunn úr enskunni!! :)
At 12/12/06 10:19,
Nafnlaus said…
Takk fyrir það:)
At 12/12/06 10:58,
Nafnlaus said…
greyið Róbert, ég get alveg ímyndað mér að þetta hafi verið mjög fyndið :-)Til hamingju með einkunnina :-) ótrúlega flott hjá þér.
At 14/12/06 08:30,
Helga Björg said…
Þú ert náttúrulega ekkert smá klár! :)
Glæsilegt hjá þér skvísa...
Gott að vera búin að skreyta og gera fínt... það er svoooo gaman! :)
At 15/12/06 00:09,
Nafnlaus said…
Til hamingju með einkuninna ;o)
Glæsilegur árangur enda af gáfuðu fólki komin hahahaha
En ég skellti næstum uppúr þegar ég las "heimferðar"söguna ykkar!!
OMG hefði ég viljað sjá til Róberts litla á þessarri stundu hahahahahaha
En bið að heilsa í bili
kveðja
Íris
At 18/12/06 12:09,
Nafnlaus said…
Frábær árangur!! Þú ert snillingur.
Æ þessi börn eru yndisleg!! Þetta hefur eflaust gert ferðina mun eftirminnilegri :D
kv.Drífa
At 18/12/06 14:24,
Nafnlaus said…
Til hamingju með einkunnina :) Þú ert náttla bara ótrúlega vel gefin stelpa, kemur mér ekkert á óvart að þú skulir brillera svona.
Kv Ásdís
At 18/12/06 22:58,
Oddny Inga said…
Takk fyrir þetta stelpur mínar hehehe:)
Skrifa ummæli
<< Home