Jólin eru að koma:)
Búin að fá niðurstöður úr öllum prófum og má bara segja að ég hafi staðið mig með prýði.
Ég fékk 9,5 í ensku eins og kom fram í síðustu færslu og var í efsta sæti þar.
8,5 í íslensku og var önnur hæst þar.
8,0 í stærðfræði og var í 7-8 sæti þar.
Ég er mjööööög sátt við þennan árangur hjá mér:)
Við bökuðum piparkökur á laugardaginn ásamt fríðu föruneyti, buðum Elínu, Danna og stelpunum, Þresti, Auði og krökkunum og það var einstaklega gaman hjá okkur:)
Um kvöldið fórum við svo í matarboð til Hrafnhildar, Mumma og co, fengum dásamlegan mat að sjálfsögðu og skemmtum okkur konunglega.
Á sunnudaginn fórum við svo í afmæli til Ása og fengum geggjaðar kökur að vanda.
Pabbi minn er svo loksins kominn heim, hann kom í dag og ætlar að stoppa yfir jólin á Íslandi, hann ætlar að vera hjá okkur á aðfangadag og það verður sko hátíð í bæ:) ég hef ekki eytt jólunum með pabba í alveg nokkur ár, eða síðan hann flutti til Danmerkur:)
Róbert er búinn að vera hjá okkur síðan á föstudaginn og það er búið að vera svo gaman. Hann er alveg kostulegur krakkinn, við fórum í Smáralindina í gær og allt í einu upp úr þurru segir hann...
ég óska þess að ég væri LÍM...við alveg HAAAA LÍM???
já þá gæti ég límt mig við jólakúlurnar og hangið á þeim...
Hann átti sem sagt við risajólakúlurnar sem hanga úr loftinu í Smáralindinni, alveg met:)
Kveð að sinni:)

3 Comments:
At 18/12/06 23:33,
Nafnlaus said…
Frábært hjá þér!! Mikið er þessi drengur yndislegur! ég vona að þið haldið vel utanum þessi gullkorn hans.
Kv. Drífa
At 20/12/06 23:16,
Nafnlaus said…
Glæislegur árangur í prófunum :o) Til hamingju með þetta!
Sjáumst
At 21/12/06 08:35,
Helga Björg said…
Þú ert náttúrulega snilli með meiru!
Þúsund sinnum til hamingju með prófin! Þetta er alveg geggjað hjá þér :)
Það sem kemur uppúr drengnum - hann er ekkert smá fyndinn! hehe...
Kv. Helga Björg
Skrifa ummæli
<< Home