Oddny bloggar

10 nóvember 2006

Veðrið er yndislegt múhahaha

Yndislegt veðrið ekki satt ha!
Annars get ég ekkert kvartað, er í "sveigju" eftir hádegi sem er frí í vinnunni, fáum svona sveigjufrí annað slagið þar sem við tökum enga kaffitíma sem er bara gott.
Ég skundaði heim sem sagt kl 12:00 fékk mér grjónagraut og horfði á Nágranna, gvöð hvað þeir eru spennandi núna, allt að gerast! Hjónaskilnaður, sjúkdómar, framhjáhald og alls konar drama í gangi núna hehehe.
Eftir uppáhalds sápuóperuna mína ákvað ég að horfa á Kastljós síðan í gær, á ungu þriggja barna móðurina Ástu sem er að berjast við krabba og grét ég heil ósköpin yfir þessu og ekki bætti úr skák þegar ég fór að lesa heimasíðuna hennar sem er http://www.123.is/crazyfroggy ótrúleg hugrökk og jákvæð kona sem ætlar sér ekki að deyja!!!
Er svo búin að vera að læra á fullu og er alveg að fara að halda áfram.
Ohhh hvað það er notalegt hjá mér, sit uppí rúmi þar sem mér finnst persónulega best að læra með sængina ofan á mér og hlusta á brjálaða veðrið úti, haglélina berja á gluggana mmmmm bara kósý.
Mig vantar bara Jónmund til að fullkomna þetta en hann hef ég varla séð síðan á Sunnudaginn síðasta, þessi dugnaðarforkur er búinn að vera að vinna fram á kvöld alla daga vikunnar og ég kem ekki til með að hitta hann almennilega fyrr en á Sunnudaginn. Hann er hetjan mín!

2 Comments:

  • At 10/11/06 18:28, Anonymous Nafnlaus said…

    Þú ert ótrúlega dugleg að læra! Átt eftir að taka þetta með trompi! Saknaði þín eftir hádegi í dag... en hafðu það gott um helgina og sjáumst vonandi annaðkvöld á Landvara :)

     
  • At 11/11/06 01:05, Anonymous Nafnlaus said…

    Takk fyrir það Helen mín:)
    Aldrei að vita nema maður droppi við ;) en ef ekki þá bara góða skemmtun gella!

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter