Kuldinn er að drepa mig!!!
Nú styttist óðum í prófin sem ég er ekkert sérlega spennt fyrir. Mér hefur nú samt gengið mjög vel hingað til en stærðfræðin er búin að þyngjast allverulega og klórum við okkur bara í hausnum þegar kennarinn reynir að útskýra fyrir okkur eeeeen það hlýtur bara að koma, ég bara trúi ekki öðru!
Ásta systir átti afmæli í gær og bauð okkur í dýrindis mat, takk fyrir það Ásta mín:)
Þessi kuldi er að drepa mig og spáð allt að -16°C í dag ussss þetta er hrikalegt, ég er ekki alveg að meika það! Ætla sko að fara á morgun eftir vinnu að kaupa mér sokkabuxur thank you very much!
Pabbi og Veigar koma heim í byrjun desember og mikið verður nú gott að fá þá feðga heim og gerum við pottþétt eitthvað gaman saman:) Gerum kannski pabbapizzu og bjóðum Bjarndísi og kannski einhverjum fleirum með:)
Róbert litli kemur um helgina og ætlum við að gera eitthvað mjööög skemmtilegt og mjöööög notalegt og rólegt:) Að vísu förum við sennilega í það að rífa teppið af stigaganginum á laugardaginn og byrjum kannski að mála því stigangurinn á að vera orðin fínn fyrir jólin.
Jæja hef ósköp lítið að segja núna...
Chao

8 Comments:
At 15/11/06 14:28,
Nafnlaus said…
Hæ sætust.
Farðu og fáðu þér síðbuxur... aha..! Spurning að hætta að raka lappirnar líka því hár halda jú hita :D hahaha
Það verður gaman að fá feðgana heim loksins, allir komnir heim og vonandi munu bara allir hafa það súper gott :)
Hlakka til að hitta þig svona "við tækifæri" elskan...
Knús í krús
At 15/11/06 15:22,
Nafnlaus said…
Já það er sko ógisslega kalt. Ég er samt mjög ánægð með að þú hafir drifið þig EIN í göngutúr í hádeginu :-)
At 15/11/06 17:04,
Nafnlaus said…
Já það er skrambi kallt :(
Þú kemur bara á hlöðina að læra stærðfræði :o) Hljótt og notarlegt að vera þar og læra.
cya
At 16/11/06 09:58,
Helga Björg said…
Vibba kuldi sko.. hérna er svo brjálað mikið rok að ég þori ekki að keyra og strætó fer ekki!:(Held ég þurfi eitthvað að taka mig á - kannski fara á skræfunámskeið) ;)
Reyndar allt uppí 40 m/sek og ég þori bara ekki... grát!
Næ vonandi að komast á eftir... er með refreashið á vegagerðinni alveg á hreinu!!!!
At 16/11/06 10:36,
Oddny Inga said…
Habba: Hætti að raka lappirnar:)
Rakel: Ég er dugnaðarforkur og þetta var líka asskoti hressandi:)
Helen: Sí jú in ðe hlaða:)
Helga: Teik it ísí, ferð nú ekki að vaða af stað þegar að allir flutningabílarnir okkar eru stopp, þá ferð þú nú ekki langt á Golfinum, nema kannski þú fjúkir langt út í buskann! Stay at home a.m.k. þar til lægir:)
At 16/11/06 12:38,
Helga Björg said…
Já eru þeir allir stopp... ágætt að vita að ég sé ekki ein um að vera skræfumús! :)
Ætla bara ekki að taka óþarfa sénsa...
At 16/11/06 12:45,
Oddny Inga said…
Já þeir eru fæstir komnir í hús, eru flestir að bíða af sér veðrið.
Betra að fá þig á morgun heila á húfi heldur en að fá þig ekki neitt!
At 22/11/06 15:58,
Nafnlaus said…
drap kuldinn þig... hefur ekkert bloggað kerla ;)
Skrifa ummæli
<< Home