Oddny bloggar

23 nóvember 2006

It´s been a while

Já ég hef ekkert verið neitt of dugleg að blogga undanfarið...en tímaleysið hefur verið að hrjá mig undanfarið.
Nú er ég að byrja að undirbúa mig fyrir prófin en það fyrsta er á mánudaginn n.k. og svo 3 í vikunni þar á eftir. Elín ætlar að vera svo elskuleg og hjálpa mér með stærðfræðina, ég bara skil ekki, mér gekk svo vel í henni alveg þangað til núna...mér finnst þetta eitthvað svo flókið sem ég er í núna...veit ekki einu sinni hvað þetta heitir...og svo er bókin á ensku í þokkabót.
Á föstudagskvöldið rifum við teppið af sameigninni, pússuðum handriðið, skrúbbuðum og máluðum, á laugardaginn voru veggirnir málaðir og í gær var klárað að setja nýja teppið, þvílíkur munur á sameigninni hjá okkur...maður hreinlega gerði sér ekki grein fyrir því hversu ógeðslegt gamla teppið var orðið.
Róbert var hjá okkur um helgina og sá var glaður þegar hann sá snjóinn á sunnudagsmorgun og svipurinn á honum þegar ég spurði hann hvort við ættum ekki að fara út að leika í snjónum, hann lék sér og við Jónmundur ýttum fullt af föstum bílum. Svo þurfti að draga vinnubílinn hans Jónmundar úr innkeyrslunni heima...svo mikill var snjórinn þar, og hann á sumardekkjum;)
Svo er það matarboð í kvöld, Oddný og Sjonni eru í bænum og vildum við endilega bjóða þeim í góðan mat:)
Hef ekkert að segja...bless bless, sjáumst hress hehehe

4 Comments:

  • At 24/11/06 09:01, Blogger Helga Björg said…

    Loksins loksins!!! :)
    Ég held að þú eigir eftir að rúlla þessum prófum upp - gott að fá smá hjálp með stærðfræðin! Hún er allavega ekki mín sterkasta grein! :)

    En hjúkk að snjórinn sé að hverfa - má fara að snjóa aftur í kringum 22 des! :) Þá verð ég agalega glöð!

     
  • At 24/11/06 11:33, Blogger Oddny Inga said…

    Já ég er svoooo sammála þér...fínt að fá snjóinn þá aftur og svo má hann fara aftur svona um miðjan febrúar:)

     
  • At 25/11/06 20:27, Anonymous Nafnlaus said…

    helv... snjór. Ég er bara ekki að fýla hann og hálkuna sem kemur í kjölfarið.
    En þú átt eftir að standa þig vel í prófunum, það er ég viss um :)
    Sjáumst eftir helgi.

     
  • At 27/11/06 12:44, Anonymous Nafnlaus said…

    ég vil sko að snjórinn fari frekar um miðjann janúar heldur en febrúar. Það er ALLTAF snjór á afmælinu mínu sem er í byrjun feb :o( snökkt snökkt, væri gaman að breyta því :)

     

Skrifa ummæli

<< Home

 
Counters
Site Counter